Skattsvikarar skilja eftir 20 ára hjónaband

Joe og Teresa Giudice skilja eftir 20 ára hjónaband.
Joe og Teresa Giudice skilja eftir 20 ára hjónaband. skjáskot/Instagram

Reunveruleikastjörnurnar Teresa og Joe Giudice hafa sótt um skilnað eftir um 20 ára hjónaband. Mikið hefur gengið á hjá þeim hjónum í gegnum árin en þau voru meðal annars dæmd fyrir fjársvika- og skattalagabrot. 

Dómarnir sem þau hlutu fyrir fjársvikin höfðu mikil áhrif á samband þeirra en Teresa sat inni í tæpt ár. Hún losnaði úr fangelsi rétt fyrir jólin 2015. Joe var dæmdur í 3 ára fangelsi og losnaði í mars á þessu ári. Hann er frá Ítalíu og var sendur úr landi eftir afplánunina. 

Þar sem Joe býr á Ítalíu en Teresa í Bandaríkjunum hafa þau þurft að vera í fjarsambandi. Það greinilega tekið sinn toll á sambandið og nú skilja leiðir þeirra. Þau eiga fjórar dætur saman.

Joe birti mynd á Instagram þar sem hann skrifaði undir að nú væri tími til þess að sleppa takinu. 

View this post on Instagram

It’s Time To Let Go #LinkInBio

A post shared by Joe Giudice (@joe.giudice) on Dec 17, 2019 at 11:54am PST

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er sannleikskorn í því að hálfnað er verk þá hafið er. Þú kemur miklu í verk í dag og nýtur góðs af styrk annarra.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er sannleikskorn í því að hálfnað er verk þá hafið er. Þú kemur miklu í verk í dag og nýtur góðs af styrk annarra.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir