Segir allt í lagi með Affleck

Jennifer Lopez segir allt í himnalagi.
Jennifer Lopez segir allt í himnalagi. AFP

Hollywood-hjónin Ben Affleck og Jennifer Lopez mættu saman á Golden Globe-verðlaunahátíðina á sunnudaginn. Affleck lét lítið fyrir sér fara og sá Lopez meðal annars um að svara fyrir hegðun hans að undanförnu þar sem hann hefur virst vera í ójafnvægi. 

„Það er allt í lagi með Ben, ég skal fullvissa þig um að þú þarft ekki að hafa áhyggjur af Ben,“ sagði Lopez á rauða dreglinum við blaðamann frá miðlinum ET. „Hann hefur það gott, hann er hamingjusamur. Hann er hérna og er tilnefndur. Ég er slök. Ég skil ekki hvað truflar fólk.“

Þrátt fyrir að Affleck lét lítið fyrir sér fara á rauða dreglinum og lét Lopez um að vinna vinnuna sátu þau saman á viðburðinum. Þau leyfðu líka ljósmyndurum að smella af sér mynd þar sem þau föðmuðu hvort annað og kysstu. 

Ben Affleck á Golden Globe-verðlaunahátíðinni.
Ben Affleck á Golden Globe-verðlaunahátíðinni. AFP
Hér má sjá hjónin Ben Affleck og Jennifer Lopez láta …
Hér má sjá hjónin Ben Affleck og Jennifer Lopez láta vel að hvort öðru á rauða dreglinum í desember. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir þér grein fyrir að þú hefur ekki sagt allan sannleikann í spjalli við fólk. Farðu þér því hægt í málefnum hjartans og leyfðu huganum að vera með í spilinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir þér grein fyrir að þú hefur ekki sagt allan sannleikann í spjalli við fólk. Farðu þér því hægt í málefnum hjartans og leyfðu huganum að vera með í spilinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson