Brad Pitt fluttur inn með kærustunni

Brad Pitt er fluttur inn með kærustunni.
Brad Pitt er fluttur inn með kærustunni. AFP/RUDY CAREZZEVOLI

Leikarinn Brad Pitt og skartgripahönnuðurinn Ines de Ramon eru flutt inn saman. Parið hefur enn ekki mætt saman á rauða dregilinn en hefur þó verið að hittast síðan árið 2022. 

Það var de Ramon sem flutti inn til Pitts. „Þetta er frekar nýlegt,“ sagði heimildarmaður People sem þekkir til de Ramon. De Ramon er þó ekki búin að losa sig við húsnæði sitt. „Það gengur mjög vel hjá þeim og hún hefur aldrei verið eins hamingjusöm.“

Parið mætti saman á Santa Barbara International Film Festival í vikunni þar sem leikarinn Bradley Cooper var heiðraður. Parið sat saman en Pitt sem sá um að kynna Cooper sleppti því að mæta á rauða dregilinn. 

Brad Pitt og leikkonan Angelina Jolie fóru í sundur árið 2016 en skilnaður þeirra tók mörg ár. De Ramon var hins vegar gift leikaranum Paul Wesley. Þau skildu árið 2022 eftir þriggja ára hjónaband. 

Angelina Jolie og Brad Pitt.
Angelina Jolie og Brad Pitt. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson