Þessar bækur hlutu hljóðbókaverðlaunin í kvöld

Vinningshafar Íslensku hljóðbókaverðlaunanna.
Vinningshafar Íslensku hljóðbókaverðlaunanna. Storytel

Ís­lensku hljóð­bóka­verð­laun­in, Stor­ytel Aw­ards, voru veitt við há­tíð­lega at­höfn í kvöld.

Um er að ræða ár­leg­an við­burð þar sem hljóð­bóka­unn­end­ur, út­gef­end­ur, höf­und­ar og les­ar­ar fagna sam­an út­gáfu vönduðustu hljóð­bóka síðasta árs.

Eliza Reid heiðruð

Verð­laun voru veitt í fimm flokk­um auk sér­stakra heiður­sverðlauna sem Eliza Reid hlaut fyr­ir fyrir ómetanlegt framlag í þágu íslenskra bókmennta og ritlistar.

„Elíza hefur talað fyrir mikilvægi íslenskra bókmennta og að þjóðin hafi aðgengi að þýddu erlendu efni sem víkki sjóndeildarhringinn. Hún hefur verið ötul að kynna íslenskar bókmenntir og koma íslenskum rithöfundum á framfæri erlendis á fjölbreyttum vettvangi“ segir í tilkynningu.

Eliza Reid.
Eliza Reid. Ljósmynd/Aðsend

Verðlauna­haf­ar voru eft­ir­tald­ir:

Besta skáldsagan

Minningarskrínið
Höfundur: Kathryn Hughes
Þýðing: Ingunn Snædal
Lestur: Katla Njálsdóttir, Álfrún Helga Örnólfsdóttir, Helga E. Jónsdóttir

Minningarskrínið var valin besta skáldsagan.
Minningarskrínið var valin besta skáldsagan. Storytel

„Vinningshafi í flokki skáldsagna er Minningaskrínið eftir Kathryn Hughes í frábærri þýðingu Ingunnar Snædal. Sagan er mjög vel skrifuð, forvitnileg og er byggð á sönnum atburðum.

Hún hverfist um þrjár sögumanns raddir og í þessari snjöllu hljóðbók fær hver rödd sinn sérstaka lesara sem bætir vel við gæði sögunnar og skilar sér í eftirminnilegri hlustun. Í Minningaskríninu eru möguleikar hljóðbókarinnar nýttir til fulls.

Það er unun að hlusta á þær Kötlu, Álfrúnu og Helgu. Lestur þeirra er eðlilegur, áreynslulaus og flæðir vel.“

Mæðgurnar Álfrún Örnólfsdóttir og Helga. E. Jónsdóttir.
Mæðgurnar Álfrún Örnólfsdóttir og Helga. E. Jónsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Besta ljúflestrarsagan

Óbragð
Höfundur: Guðrún Brjánsdóttir
Lestur: Arnmundur Ernst Backman

Óbragð var valin besta ljúflestrarsagan
Óbragð var valin besta ljúflestrarsagan Storytel

Umsögn dómnefndar:

„Óbragð eftir Guðrúnu Brjánsdóttur er áhrifamikil en jafnframt bráðskemmtileg samtímasaga þar sem höfundur bregður á leik með kunnugleg stef á borð við covid, núvitund og örvæntingu þeirra sem verða skipreka í vellystingakapphlaupi samfélagsmiðla.

Í bókinni kynnumst við Hjalta, ungum manni sem dregst inn í heim kakó-hugleiðsluklúbba eftir erfið sambandsslit. Frásögnin er glettin en jafnframt átakanleg þar sem hún dregur fram sálarflækjur þunglyndis og einangrunar.

Persónurnar, sérstaklega hinn ráðvillti Hjalti, eru ljóslifandi í lestri Arnmundar Ernst Backman, sem fangar kvíða og tilvistarkreppu hins unga manns á hátt sem breytir góðri bók í eftirminnilega upplifun.“

Besta barna- og ung­menna­bók­in

Hanni granni dansari
Höfundur: Gunnar Helgason
Lestur: Gunnar Helgason

Hanni granni dansari var valin besta barna- og ung­menna­bók­in.
Hanni granni dansari var valin besta barna- og ung­menna­bók­in. Storytel

Umsögn dómnefndar:

„Hanni granni dansari er einstaklega skemmtileg og lífleg hljóðbók þar sem öllu er tjaldað til. Mikil leik- og sönggleði einkennir texta og upplestur hljóðbókarinnar, en hljóðmyndin er lifandi þar sem meðal annars má heyra brot úr lögum með söngkonunum Selmu Björnsdóttur og Völu Guðnadóttur.

Gunnar Helgason.
Gunnar Helgason. Ljósmynd/Aðsend

Ekki skemmdi orkumikill lestur höfundarins Gunnars Helgasonar og dómnefndarmeðlimir skemmtu sér konunglega við hlustunina. Boðskapur sögunnar er einstaklega nútímalegur og áríðandi: það skiptir máli hvernig við hegðum okkur á samfélagsmiðlum, og eins og Stella kemst að í bókinni, hafa gjörðir okkar afleiðingar.

Það er kafað á dýptina þar sem samband Stellu við bæði vini, fjölskyldu og mögulegan kærasta er í forgrunni. Semsagt, öll fjölskyldan getur skemmt sér við hlustun á hljóðbókinni Hanni granni dansari.“

Besta ósk­áldaða efnið

Réttarmorð
Höfundur: Sigursteinn Másson
Lestur: Sigursteinn Másson

Réttarmorð var valið besta ósk­áldaða efnið.
Réttarmorð var valið besta ósk­áldaða efnið. Storytel

Umsögn dómnefndar:

„Fá sakamál á Íslandi hafa jafn goðsagnakennda stöðu í vitund þjóðarinnar og Guðmundar- og Geirfinnsmálin. Í Réttarmorði er ljóst frá upphafi að sögumaðurinn og rannsakandinn Sigursteinn Másson hefur unnið mikið þrekvirki og hefur djúpan og persónulegan skilning á efninu.

Réttarmorð er virkilega vel unnið verk, þar sem flókinni framvindu er miðlað á skýran og áhrifaríkan hátt. Það er ekki auðvelt að finna nýjan flöt á máli sem er líklega umfjallaðasta sakamál Íslandssögunnar en hér tekst það, ekki síst vegna þess að höfundurinn setur sjálfan sig inn í miðju framvindunnar, svo úr verður persónulegt og fróðlegt verk. Með þessari seríu tekst Sigursteini að færa þetta óupplýsta mál í nýtt og forvitnilegt samhengi. Frásögnin er aðgengileg og laus við að vera ruglingsleg.

Það styður vel við framvinduna að flétta inn í frásögnina því sem var að gerast út í hinum stóra heimi á þessum tíma. Þetta er dýrmæt heimild fyrir sögu íslenskra sakamála. Hljóðvinnsla er til fyrirmyndar og bætir miklu við hlustunarupplifunina bæði með effektum og mjög vel völdum bútum úr lögum frá þessum tíma, þ.e.a.s. frá áttunda áratugnum. Lestur Sigursteins er skýr og ákveðinn og hentar efninu vel.“ 

Besta glæpasagan

Hungur
Höfundur: Stefán Máni
Lestur: Rúnar Freyr Gíslason

Hungur var valin besta glæpasagan.
Hungur var valin besta glæpasagan. Storytel

Umsögn dómnefndar:

„Hungur eftir Stefán Mána er hrollvekjandi glæpasaga þar sem tengsl milli dularfulls mannshvarfs og hrottalegs morðs um hábjartan dag koma af stað spennandi atburðarás sem afhjúpar skuggahliðar mannlegs eðlis.

Stefán Máni.
Stefán Máni. Ljósmynd/Aðsend

Brátt taka líkin að hrannast upp og ljóst er Hörður og félagar hans í lögreglunni eru að takast á við fjöldamorðingja, blóðugar aðfarir hvers bera glöggt merki um truflaðan og myrkan huga. Sem áður fer Rúnar Freyr Gíslason á kostum í flutningi sínum sem berdreymni einfarinn Hörður Grímsson og fær hlustendur til að vilja fara að sofa með ljósin kveikt.“

Almenningur og dómnefnd völdu sigurvegara

Að undangenginni almenningskosningu í janúar fóru tilnefndar bækur fyrir sérstakar fagdómnefndir. Elva Ósk Ólafsdóttir leikkona og lesari hjá Storytel var formaður dómnefnda en dómnefndir skipuðu:

Fyrir skáldsögur og óskáldað efni: Elva Ósk Ólafsdóttir, Jóhannes Ólafsson og Brynja Hjálmsdóttir.

Fyrir glæpasögur og ljúflestur: Björn Halldórsson, Ingibjörg Iða Auðunardóttir og Einar Aðalsteinsson.

Fyrir barna- og ungmennabækur: Örn Árnason, Rebekka Sif Stefánsdóttir og Sævar Helgi Bragason.

Dómnefndir höfðu það að leiðarljósi að líta heildstætt á hvert verk þar sem vandaður lestur á góðu ritverki og jafnvel hljóðskreyting getur bætt miklu við upplifun lesandans. Því voru ekki aðeins rithöfundar verðlaunaðir heldur einnig lesarar hljóðbókanna, segir í tilkynningu frá Storytel.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir þér grein fyrir að þú hefur ekki sagt allan sannleikann í spjalli við fólk. Farðu þér því hægt í málefnum hjartans og leyfðu huganum að vera með í spilinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir þér grein fyrir að þú hefur ekki sagt allan sannleikann í spjalli við fólk. Farðu þér því hægt í málefnum hjartans og leyfðu huganum að vera með í spilinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson