Hundur í óskilum heldur hér áfram að varpa óvæntu ljósi á Íslandssöguna með húmorinn að vopni. Nú er komið að sögu kvenna og kvennabaráttunni. Frá því að konan kom til landsins í lok nítjándu aldar hafa íslenskir karlmenn gert sitt besta til að laga sig að breyttum aðstæðum. En hefur okkur tekist sem skyldi? Sagan greinir frá örfáum konum raunar svo fáum að það er búið að skíra rakettur í höfuðið á þeim öllum. Hundur í óskilum veltir við hverjum steini og grefur upp ýmislegt óvænt og skemmtilegt í sögu jafnréttisbaráttunnar. Búðu þig undir drepfyndna sagnfræði með söngvum. Kvenfólk sló í gegn hjá Leikfélagi Akureyrar s.l. vetur og var tilnefnd til þrennra grímuverðlauna.
Hundur í óskilum er margrómaður og verðlaunaður dúett sem er leikhúsgestum að góðu kunnur fyrir leiksýningar sínar Sögu þjóðar sem hlaut Grímuverðlaun árið 2012 og Öldina okkar sem gekk fyrir fullu húsi í Samkomuhúsinu á Akureyri og svo í Borgarleikhúsinu í kjölfarið.
Gestasýning frá Leikfélagi Akureyrar