Ekki þörf á samfélagslegum takmörkunum eða skimun

Apabóla | 10. júní 2022

Ekki þörf á samfélagslegum takmörkunum eða skimun

Heilbrigðisráðherra hefur með reglugerð skilgreint apabólu sem tilkynningarskyldan sjúkdóm. Grunur er um tvö tilfelli apabólu hér á landi en beðið er staðfestingar á þeirri greiningu.

Ekki þörf á samfélagslegum takmörkunum eða skimun

Apabóla | 10. júní 2022

Apabóla er nú tilkynningaskyldur sjúkdómur.
Apabóla er nú tilkynningaskyldur sjúkdómur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Heilbrigðisráðherra hefur með reglugerð skilgreint apabólu sem tilkynningarskyldan sjúkdóm. Grunur er um tvö tilfelli apabólu hér á landi en beðið er staðfestingar á þeirri greiningu.

Heilbrigðisráðherra hefur með reglugerð skilgreint apabólu sem tilkynningarskyldan sjúkdóm. Grunur er um tvö tilfelli apabólu hér á landi en beðið er staðfestingar á þeirri greiningu.

Sóttvarnalæknir telur hins vegar ekki þörf á að grípa til opinberra sóttvarnaráðstafana á borð við samfélagslegar takmarkanir eða skimun fyrir sjúkdómnum. Hann mælir þó með því að ef einstaklingar greinast með apabólu verði þeir skyldaðir í einangrun í allt að þrjár vikur, eða þar til smithætta er yfirstaðin. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

Áhersla lögð á fræðslu og upplýsingagjöf

Í samtali við mbl.is í gær sagðist Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir ekki hafa áhyggjur af mikilli útbreiðslu apabólu hér á landi, enda smitast sjúkdómurinn aðallega með náinni langvarandi snertingu eins og kynlífi. Apabóla gæti þó orðið viðvarandi innan ákveðinna hópa í einhvern tíma.

Þórólfur hefur lagt til ákveðin viðbrögð af hálfu embættis síns og heilbrigðiskerfisins til að lágmarka útbreiðslu apabólu hér á landi. Áhersla er lögð á fræðslu og upplýsingagjöf og leiðbeiningar til heilbrigðisstarfsfólks og almennings um smitleiðir, áhættuþætti, einkenni, greiningu og aðgerðir ef einstaklingar veikjast.

Unnið að því að fá veirulyf og bóluefni til landsins

Apabóla er veirusjúkdómur og er veiran náskyld bólusóttarveiru sem veldur bólusótt. Sjúkdómurinn er vel þekktur og landlægur í Mið- og Vestur Afríku. Undanfarnar vikur hafa greinst yfir 1000 tilfelli apabólu í 20 Evrópulöndum og átta löndum utan Evrópu þar sem sjúkdómurinn er ekki landlægur.

Að jafnaði líða um ein til tvær vikur frá smiti og þar til einkenna verður vart. Einkennin eru flensulík í byrjun, síðar koma fram útbrot sem líkst geta hlaupabólu eða sárasótt. Alvarleg veikindi eru sjaldgæf í um 90 prósent tilvika og oftast gengur sjúkdómurinn yfir af sjálfu sér án meðferðar.

Heilbrigðisráðuneytið, í samráði við Lyfjastofnun, vinnur að því að fá hingað veirulyf og bóluefni sem gætu gagnast völdum einstaklingum gegn sýkingunni. Þá verður haft náið samráð við Sóttvarnastofnun Evrópusambandsins um viðbrögð við sýkingum af völdum apabólu. 

mbl.is