Richie fagnaði afmælinu án pabba síns

Frægir ferðast | 27. ágúst 2022

Richie fagnaði afmælinu án pabba síns

Fyrirsætan Sofia Richie fagnaði á dögunum 24 ára afmæli sínu í faðmi fjölskyldu og vina á San Ysidro-búgarðinum í Montecito, Kaliforníu.

Richie fagnaði afmælinu án pabba síns

Frægir ferðast | 27. ágúst 2022

Fyrirsætan Sofia Richie fagnaði 24 ára afmæli sínu með stæl …
Fyrirsætan Sofia Richie fagnaði 24 ára afmæli sínu með stæl í Kaliforníu. Samsett mynd

Fyrirsætan Sofia Richie fagnaði á dögunum 24 ára afmæli sínu í faðmi fjölskyldu og vina á San Ysidro-búgarðinum í Montecito, Kaliforníu.

Fyrirsætan Sofia Richie fagnaði á dögunum 24 ára afmæli sínu í faðmi fjölskyldu og vina á San Ysidro-búgarðinum í Montecito, Kaliforníu.

Því miður virtust þó systir hennar, Nicole Richie, og faðir hennar, Lionel Richie sem er fjórfaldur Grammy-verðlaunahafi, bæði hafa sleppt veislunni. Af myndum að dæma naut hún sín samt sem áður í botn og deildi meðal annars sjóðheitri mynd af sér og unnusta sínum, Elliot Grainge.

Dagurinn byrjaði með morgunverðarveislu, en þar voru meðal annars á boðstólum pönnukökur, pylsur, enskar múffur og beyglur.

Richie vaknaði við glæsilegt morgunverðarhlaðborð á afmælisdaginn.
Richie vaknaði við glæsilegt morgunverðarhlaðborð á afmælisdaginn. Skjáskot/Instagram

Um kvöldið var svo blásið til heljarinnar veislu og deildi Richie fallegum myndum frá kvöldinu á instagramreikningi sínum. Á matseðlinum voru tómatar með grilluðum spænskum kolkrabba, gljáður lax, kjúklingur, cacio e pepe, crème brûlée og að lokum glæsileg afmælisterta. 

Veislan var hin glæsilegasta.
Veislan var hin glæsilegasta. Skjáskot/Instagram
mbl.is