Í lúxusvillu í Aspen

Frægir ferðast | 13. desember 2022

Í lúxusvillu í Aspen

Snjóþungar götur Aspen í Colorado breyttust í tískupall þegar systurnar Kylie og Kendall Jenner mættu þangað í sannkallað lúxusfrí. 

Í lúxusvillu í Aspen

Frægir ferðast | 13. desember 2022

Það væsir ekki um systurnar í Aspen.
Það væsir ekki um systurnar í Aspen. Samsett mynd

Snjóþungar götur Aspen í Colorado breyttust í tískupall þegar systurnar Kylie og Kendall Jenner mættu þangað í sannkallað lúxusfrí. 

Snjóþungar götur Aspen í Colorado breyttust í tískupall þegar systurnar Kylie og Kendall Jenner mættu þangað í sannkallað lúxusfrí. 

Kylie og Kendall hafa greinilega dregið fram flottasta vetrarklæðnaðinn fyrir ferðalagið, en þær fóru í verslunarleiðangur klæddar í hönnun frá toppi til táar. Þar sáust þær versla í fínustu tískuverslunum Aspen, þar á meðal Prada. 

Systurnar voru smart í verslunarleiðangri sínum.
Systurnar voru smart í verslunarleiðangri sínum. Samsett mynd

Sjóðheitar í snjónum

Það væsir að sjálfsögðu ekki um systurnar, en af myndum að dæma gista þær í mikilli lúxusvillu. Eftir langan dag af búðarápi ákvað Kylie að skella sér í heita pottinn þar sem hún smellti nokkrum sjóðheitum myndum með vinkonu sinni, Yris Palmer. 

Vinkonurnar klæddust báðar svörtum sundfatnaði og voru með svört sólgleraugu í stíl. Þá höfðu þær hvítan slopp meðferðis og hlýja skó, enda kalt í Aspen. 

View this post on Instagram

A post shared by Kylie 🤍 (@kyliejenner)

View this post on Instagram

A post shared by YRIS PALMER (@yrispalmer)

mbl.is