Trump kennt um valdatöku talíbana í Afganistan

Talíbanar í Afganistan | 6. apríl 2023

Trump kennt um valdatöku talíbana í Afganistan

Hvíta húsið kennir Donald Trump Bandaríkjaforseta um slæmar afleiðingar valdatöku talíbana í Afganistan sumarið 2021. Fjöldi fólks hélt á flugvöllinn í Kabúl til þess að flýja landið þar sem nú er breytt stjórnarfar og skert mannréttindi.

Trump kennt um valdatöku talíbana í Afganistan

Talíbanar í Afganistan | 6. apríl 2023

Hvíta húsið kennir Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseta um valdatöku talíbana …
Hvíta húsið kennir Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseta um valdatöku talíbana í Afganistan. AFP

Hvíta húsið kennir Donald Trump Bandaríkjaforseta um slæmar afleiðingar valdatöku talíbana í Afganistan sumarið 2021. Fjöldi fólks hélt á flugvöllinn í Kabúl til þess að flýja landið þar sem nú er breytt stjórnarfar og skert mannréttindi.

Hvíta húsið kennir Donald Trump Bandaríkjaforseta um slæmar afleiðingar valdatöku talíbana í Afganistan sumarið 2021. Fjöldi fólks hélt á flugvöllinn í Kabúl til þess að flýja landið þar sem nú er breytt stjórnarfar og skert mannréttindi.

Ákvarðanir Donalds Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseta spiluðu þar stórt hlutverk að því er fram kemur í nýrri skýrslu þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna. Útdráttur úr skýrslunni hefur verið birtur.

Vanmátu styrk talíbana

Herlið Bandaríkjanna yfirgaf Kabúl, höfuðborg Afganistan um miðjan ágúst árið 2021 en þá höfðu talíbanar náð fjölda héraða landsins á sitt vald. Talíbanar réðust inn í Kabúl af fullum krafti þann 15. ágúst og náðu völdum í landinu í kjölfarið.

Í fyrrnefndri skýrslu er Trump kennt um atburðarásina, þó svo að stærsti hluti áætlunar þess efnis að draga herinn frá Afganistan hafi verið hrundið í framkvæmd. Fyrri hluta ársins 2021 fækkuðu Bandaríkjamenn í herliði sínu í Afganistan og sóttu talíbanar í sig veðrið.

Ekkert hefði getað komið í veg fyrir hörmungarnar

Kemur fram í skýrslu þjóðaröryggisráðs að bandarísku leyniþjónustunni hafi mistekist að lesa í aðstæður. Þannig hafi stjórnarher Afganistan ekki búið yfir sama styrk og bandarísk stjórnvöld væntu auk þess sem þau vanmátu styrk talíbana.

Ekkert hefði getað komið í veg fyrir hörmungar vegna brotthvarfs Bandaríkjahers frá Afganistan, að mati þjóðaröryggisráðsins. Joe Biden hafi „neitað því að senda aðra kynslóð Bandaríkjamanna í stríð sem hefði átt að vera lokið fyrir löngu síðan“.

mbl.is