Sjómenn minntir á að sleppa í samræmi við reglur

Eftirlit með veiðum | 10. ágúst 2023

Sjómenn minntir á að sleppa í samræmi við reglur

Fjöldi tegunda má sleppa sem berast sem meðafli annarra veiða og er í sumum tilvikum skylda að sleppa fiskum við veiðar. Fiskistofa minnir sjómenn og útgerðaraðila á gildandi reglur í tilkynningu á vef stofnunar vegna drónaeftirlits í þessum mánuði.

Sjómenn minntir á að sleppa í samræmi við reglur

Eftirlit með veiðum | 10. ágúst 2023

Fiskistofa stundar drónaeftirlit með veiðum í ágúst.
Fiskistofa stundar drónaeftirlit með veiðum í ágúst. mbl.is/Árni Sæberg

Fjöldi tegunda má sleppa sem berast sem meðafli annarra veiða og er í sumum tilvikum skylda að sleppa fiskum við veiðar. Fiskistofa minnir sjómenn og útgerðaraðila á gildandi reglur í tilkynningu á vef stofnunar vegna drónaeftirlits í þessum mánuði.

Fjöldi tegunda má sleppa sem berast sem meðafli annarra veiða og er í sumum tilvikum skylda að sleppa fiskum við veiðar. Fiskistofa minnir sjómenn og útgerðaraðila á gildandi reglur í tilkynningu á vef stofnunar vegna drónaeftirlits í þessum mánuði.

„Eftirlitsmenn Fiskistofu munu  fljúga drónum til eftirlits í ágúst og viljum við minna á að allar upptökur eru skoðaðar vel og fiskur sem fer fyrir borð er tegundargreindur,“ segir í tilkynningunni.

Fram kemur að óhætt sé að sleppa lífvænlegum hlýra og tindaskötu. Þá sé skylda að sleppa lífvænlegum beinhákarli, háfi og hámeri.

Lífvænlegri tindaskötu er óhætt að sleppa.
Lífvænlegri tindaskötu er óhætt að sleppa. Ljósmynd/Sjávarlíf.is

Þá eru einnig reglur um meðafla ákveðinna veiða og er til að mynda skylt að sleppa grásleppu sem fæst í þorskfiskanet og er heimilt að sleppa lífvænlegum rauðmaga sem fæst við grásleppuveiðar.

Skylt er að sleppa allri lúðu sem fæst sem meðafli við veiðar sé hún lífvænleg og á línuveiðum skal sleppa allri lúðu með því að skera á taum línunnar. Við handfæra- og sjóstangaveiðar á að losa lúðu varfærnislega af krókum eða skera á lykkju slóðans áður en lúða kemur um borð.

mbl.is