Leyndarmálið á bak við Instagram-myndir Sunnevu Einars

Sunneva Eir | 14. ágúst 2023

Leyndarmálið á bak við Instagram-myndir Sunnevu Einars

Áhrifavaldurinn Sunneva Einarsdóttir hefur verið að gera það gott á samfélagsmiðlum síðastliðin ár þar sem hún deilir lífstíls- og tískutengdu efni með rúmlega 56 þúsund fylgjendum sínum. 

Leyndarmálið á bak við Instagram-myndir Sunnevu Einars

Sunneva Eir | 14. ágúst 2023

Áhrifavaldurinn Sunneva Einarsdóttir er þekkt fyrir að birta glæsilegar skvísumyndir …
Áhrifavaldurinn Sunneva Einarsdóttir er þekkt fyrir að birta glæsilegar skvísumyndir af sér á samfélagsmiðlum. Samsett mynd

Áhrifavaldurinn Sunneva Einarsdóttir hefur verið að gera það gott á samfélagsmiðlum síðastliðin ár þar sem hún deilir lífstíls- og tískutengdu efni með rúmlega 56 þúsund fylgjendum sínum. 

Áhrifavaldurinn Sunneva Einarsdóttir hefur verið að gera það gott á samfélagsmiðlum síðastliðin ár þar sem hún deilir lífstíls- og tískutengdu efni með rúmlega 56 þúsund fylgjendum sínum. 

Sunneva er þekkt fyrir að birta einkar glæsilegar skvísumyndir af sér á Instagram, en í sumar var hún dugleg að ferðast og birti fjölda töfrandi ferðamynda sem hafa án efa kveikt undir ferðaþrá fylgjenda hennar. 

„Draumur allra stelpna“

Á dögunum ákvað Sunneva að deila leyndarmálinu á bak við töfrandi Instagram-myndir sínar með fylgjendum sínum á TikTok, en það er enginn annar enn ljósmyndarinn á bak við vélina, kærasti hennar Benedikt Bjarnason. 

Benedikt og Sunneva hafa verið saman í að verða fjögur ár, en Benedikt er sonur Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra. Benedikt virðist afar lunkinn við að ná góðum myndum af Sunnevu, en í myndbandinu sést Benedikt töfra fram hina fullkomnu Instagram-mynd sem endaði að sjálfsögðu á Instagram-reikning Sunnevu. 

„Þegar kærastinn þinn tekur myndavélina sína með hvert sem þið farið og passar að þú náir geggjuðum myndum,“ skrifaði hún við myndbandið.

mbl.is