Ríkisráðsfundi lokið

Ríkisráðsfundi lokið

Ráðherrar ríkisstjórnarinnar mættu á ríkisráðsfund á Bessastöðum nú klukkan tvö, en fundinum var að ljúka.

Ríkisráðsfundi lokið

Bjarni segir af sér sem fjármálaráðherra | 14. október 2023

Ráðherrar ríkisstjórnarinnar eru mættir til fundar á Bessastöðum.
Ráðherrar ríkisstjórnarinnar eru mættir til fundar á Bessastöðum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ráðherrar ríkisstjórnarinnar mættu á ríkisráðsfund á Bessastöðum nú klukkan tvö, en fundinum var að ljúka.

Ráðherrar ríkisstjórnarinnar mættu á ríkisráðsfund á Bessastöðum nú klukkan tvö, en fundinum var að ljúka.

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, mætti ekki á fundinn vegna forfalla. Hann var eini ráðherrann sem mætti ekki á fundinn.

Á fundinum fóru ráðherraskipti fram. Bjarni Benediktsson tekur við embætti utanríkisráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir verður fjármála- og efnahagsráðherra.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir er mætt á Bessastaði.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir er mætt á Bessastaði. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og næsti utanríkisráðherra.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og næsti utanríkisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra.
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is