Stjörnukokkurinn Danny Mena með Pop-up á Tres Locos

Innlend veitingahús | 23. október 2023

Stjörnukokkurinn Danny Mena með Pop-up á Tres Locos

Stjörnukokkurinn og matreiðslubókarhöfundurinn Danny Mena verður með Pop-up á Tres Locos 26. - 29. október næstkomandi. Mikið verður um dýrðir og það frumlegasta sem boðið verður upp á eru engisprettur.

Stjörnukokkurinn Danny Mena með Pop-up á Tres Locos

Innlend veitingahús | 23. október 2023

Stjörnukokkurinn og matreiðslubókarhöfundurinn Danny Mena verður með Pop up á …
Stjörnukokkurinn og matreiðslubókarhöfundurinn Danny Mena verður með Pop up á Tres Locos 26. - 29. október næstkomandi. Samsett mynd

Stjörnukokkurinn og matreiðslubókarhöfundurinn Danny Mena verður með Pop-up á Tres Locos 26. - 29. október næstkomandi. Mikið verður um dýrðir og það frumlegasta sem boðið verður upp á eru engisprettur.

Stjörnukokkurinn og matreiðslubókarhöfundurinn Danny Mena verður með Pop-up á Tres Locos 26. - 29. október næstkomandi. Mikið verður um dýrðir og það frumlegasta sem boðið verður upp á eru engisprettur.

Þekktastur fyrir hefðbundna mexíkóska matargerð

Danny er einn af vinsælustu mexíkósku matreiðslumönnum í New York og lofaður af miðlunum Vanity Fair, Rolling Stone, Los Angeles Times og The New York Times. Hann er einnig höfundur vinsælu matreiðslubókarinnar Made in Mexico - the cookbookDanny er þekktastur fyrir hefðbundna mexíkóska matargerð á veitingastöðum sínum Hecho en Dumbo og nú síðast á La Loncheria og Conejo.

Fimm rétt matseðill og engisprettur

Boðið verður upp á  matseðil með fimm spennandi réttum að hætti Danny, bæði alla saman í tasting og svo er líka hægt að panta einstaka rétti. Og hægt er að bæta á réttina þurrkuðum engisprettum fyrir þá huguð, sem eru til í að prófa nýja og spennandi bragðupplifun.

Í tilefni komu Danny Mena verður hægt að kaupa matreiðslubókina hans Made in Mexico - the cookbook sem er sannkallað djásn fyrir þá sem elska mexíkóska matargerð.

mbl.is