Földu óléttuna eins og Brynhildur

Meðganga | 29. janúar 2024

Földu óléttuna eins og Brynhildur

Það kom mörgum á óvart þegar áhrifavaldurinn Brynhildur Gunnlaugsdóttir greindi frá því fyrir helgi að hún væri orðin móðir. Hún er þó langt í frá fyrsti þekkti einstaklingurinn sem reynir að fela þungun. 

Földu óléttuna eins og Brynhildur

Meðganga | 29. janúar 2024

Fræga fólkið á það til að fela meðgöngur.
Fræga fólkið á það til að fela meðgöngur. Samsett mynd

Það kom mörgum á óvart þegar áhrifavaldurinn Brynhildur Gunnlaugsdóttir greindi frá því fyrir helgi að hún væri orðin móðir. Hún er þó langt í frá fyrsti þekkti einstaklingurinn sem reynir að fela þungun. 

Það kom mörgum á óvart þegar áhrifavaldurinn Brynhildur Gunnlaugsdóttir greindi frá því fyrir helgi að hún væri orðin móðir. Hún er þó langt í frá fyrsti þekkti einstaklingurinn sem reynir að fela þungun. 

Margar stjörnur úti í heimi hafa haldið meðgöngum alveg leyndum eða að minnsta kosti í marga mánuði. 

Kylie Jenner og Travis Scott

Raunveruleikastjarnan Kylie Jenner hélt óléttunni leyndri í níu mánuði þegar hún átti von á sínu fyrsta barni. Hún lét lítið fyrir sér fara á samfélagsmiðlum á meðan.

Kylie Jenner sagði ekki frá meðgöngunni þegar hún átti von …
Kylie Jenner sagði ekki frá meðgöngunni þegar hún átti von á sínu fyrsta barni með Travis Scott. Hér eru þau ásamt Stormi Webster. AFP

Justin Timberlake og Jessica Biel 

Þrátt fyrir að vera heimfrægur tónlistarmaður og hún Hollywood-leikkona náðu Justin Timberlake og Jessica Biel að halda því leyndu þegar þau eignuðust sitt annað barn.  

Jessica Biel og Justin Timberlake eru fræg en halda einkalífinu …
Jessica Biel og Justin Timberlake eru fræg en halda einkalífinu fyrir sig. AFP

Rooney Mara og Joaquin Phoenix

Leikarahjónin Rooney Mara og Joaquin Phoenix sögðu engum frá þegar þau eignuðust sitt fyrsta barn. 

Rooney Mara og Joaquin Phoenix tilkynntu ekki óléttuna.
Rooney Mara og Joaquin Phoenix tilkynntu ekki óléttuna. AFP

Amanda Seyfried og Thomas Sadoski 

Mamma Mia-stjarnan Amanda Seyfried á tvö börn. Hún náði að halda meðgöngunum leyndum. 

Amanda Seyfried er góð í að þaga yfir leyndarmálum.
Amanda Seyfried er góð í að þaga yfir leyndarmálum. AFP

Eva Mendes og Ryan Gosling

Hollywood-stjörnurnar eiga tvö börn. Þau reyndu að halda meðgöngunum leyndum í bæði skiptin og tókst ágætlega til. 

Eva Mendes og Ryan Gosling halda einkalífinu út af fyrir …
Eva Mendes og Ryan Gosling halda einkalífinu út af fyrir sig. AFP

Beyoncé og Jay-Z

Tónlistarkonan Beyoncé er ein frægasta kona í heimi. Hún var komin fimm mánuði á leið þegar hún mætti á verðlaunahátíð árið 2011. Árið 2017 birti hún óvænt mynd af sér kasóléttri á Instagram en þá átti hún von á tvíburum. 

Beyoncé á þrjú börn.
Beyoncé á þrjú börn. AFP
mbl.is