Piparsveinninn fyrrverandi Nick Viall á von á sínu fyrsta barni með kærustu sinni, skurðhjúkrunarfræðingnum Natalie Joy, á næstu vikum. Parið, sem tók saman árið 2020, tilkynnti um óléttuna í ágúst með fallegri myndatöku.

Parið, sem á von á stúlku, er að nýta tímann vel áður en barnið fæðist, en myndir náðust af verðandi foreldrunum á miðvikudag í Los Angeles er þau héldu í hádegismat.
Joy viðraði óléttukúluna í dásemdarveðrinu sem virðist alltaf vera í borg englanna, en hún klæddist magabol og stuttbuxum.
Viall er mörgum kunnur en hann keppti um ástir Andi Dorfman og Kaitlyn Bristowe í raunveruleikaþættinum The Bachelorette áður en hann hreppti hlutverk piparsveinsins í 21. þáttaröð The Bachelor.