Hryðjuverkasamtökum refsað fyrir kynferðisbrot

Ísrael/Palestína | 12. apríl 2024

Hryðjuverkasamtökum refsað fyrir kynferðisbrot

Evrópusambandið hefur kynnt nýjar refsiaðgerðir gegn palestínsku hryðjuverkasamtökunum Hamas og Heilagt stríð (e. Islamic Jihad) fyrir umfangsmikið kynbundið ofbeldi og kynferðisbrot í hryðjuverkum samtakanna í Ísrael þann 7. október.

Hryðjuverkasamtökum refsað fyrir kynferðisbrot

Ísrael/Palestína | 12. apríl 2024

Hryðjuverkamenn beittu kynferðislegu ofbeldi gegn fórnarlömbum sínum í árás sinni …
Hryðjuverkamenn beittu kynferðislegu ofbeldi gegn fórnarlömbum sínum í árás sinni á Ísrael þann 7. október. Skjáskot/CNN

Evrópusambandið hefur kynnt nýjar refsiaðgerðir gegn palestínsku hryðjuverkasamtökunum Hamas og Heilagt stríð (e. Islamic Jihad) fyrir umfangsmikið kynbundið ofbeldi og kynferðisbrot í hryðjuverkum samtakanna í Ísrael þann 7. október.

Evrópusambandið hefur kynnt nýjar refsiaðgerðir gegn palestínsku hryðjuverkasamtökunum Hamas og Heilagt stríð (e. Islamic Jihad) fyrir umfangsmikið kynbundið ofbeldi og kynferðisbrot í hryðjuverkum samtakanna í Ísrael þann 7. október.

Evrópusambandið segir að hryðjuverkasamtökin hafi kerfisbundið notað kynferðisofbeldi sem vopn í stríði en hermdarverkamenn samtakanna nauðguðu, limlestu og myrtu konur og stúlkur í árásinni.

Landnemum einnig refsað

Þá kemur einnig fram að hryðjuverkasamtökin hafi af ásettu ráði reynt að ræna sérstaklega konum og börnum, en Hamas tók um 250 gísla með sér til baka á Gasa í árás sinni á Ísrael ásamt því að drepa um 1.200 manns.

Evrópusambandið mun með þessum refsiaðgerðum geta fryst eigur manna í samtökunum og sett þá í ferðabann. Þá er einnig ólöglegt að fjármagna samtökin, beint eða óbeint.

Ísraelskir landnemar á Vesturbakkanum, sem framið hafa ofbeldi gegn Palestínumönnum, voru sömuleiðis settir á svartan lista hjá Evrópusambandinu. Á Vesturbakkanum hefur ofbeldi af hálfu landnema aukist frá 7. október.

mbl.is