Rússar taka aftur upp eftirlitsflug

Eftir Davíð Loga Sigurðsson og

Arndísi Þórarinsdóttur

david@mbl.is, arndis@mbl.is

Rússnesk stjórnvöld hafa ákveðið að taka aftur upp reglulegt eftirlitsflug út fyrir lofthelgi Rússlands og komu rússneskar flugvélar þrisvar inn á eftirlitssvæði Íslands í gær.

Heimildarmaður Morgunblaðsins sagði rússnesku vélarnar hafa komið úr norðri og flogið meðfram ströndinni. Íslensk stjórnvöld fylgdust með þeim allan tímann og skiptust á upplýsingum við stjórnstöðvar bæði í Noregi og Bretlandi. Breskar og norskar þotur flugu svo í veg fyrir rússnesku vélarnar og fylgdu þeim eftir, en það eru stöðluð viðbrögð Atlantshafsbandalagsins, NATO, í tilfellum sem þessu.

Grétar Már Sigurðsson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, vildi ekki tjá sig að svo stöddu um málið. Hann sagðist þó myndu kalla rússneska sendiherrann á Íslandi á sinn fund eftir helgi og leita skýringa.

Vladímír Pútín Rússlandsforseti greindi frá þessari breyttu varnarmálastefnu Rússa í gær en fjórtán langdrægar sprengju- og könnunarvélar munu hafa hafið eftirlitið.

"Flugmenn okkar hafa verið fastir á jörðu niðri of lengi. Þeir eru ánægðir að komast í loftið á ný," sagði Pútín. Í kalda stríðinu flugu sovéskar sprengjuvélar reglulega inn á svæði þaðan sem hæglega hefði mátt skjóta stýriflaugum með kjarnaoddum á skotmörk í Bandaríkjunum. Slíkar aðgerðir lögðust hins vegar af við hrun Sovétríkjanna. Pútín harmaði í gær að frá 1992 hefði Rússland hætt eftirlitsflugi á fjarlægum slóðum. Það hefði valdið vandræðum í öryggismálum Rússlands enda hefðu aðrir ekki fylgt fordæmi þeirra. Virtist Pútín þar vera að vísa til Bandaríkjamanna.

Ekki í fyrsta sinn við Ísland

Rússneskum sprengjuvélum hefur á undanförnum árum endrum og sinnum verið flogið til svæða undan ströndum Noregs og Íslands, sem og undan norðausturströnd Rússlands, yfir Beringshafið að Alaska. Slíkt eftirlitsflug hefur hins vegar ekki verið algengt og benda ummæli Pútíns í gær til þess að breyting kunni að verða þar á.

Sjá nánar í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert