Benedikt kom í þyrlu

Þyrla Benedikts páfa lendir í Páfagarði.
Þyrla Benedikts páfa lendir í Páfagarði. AFP

Benedikt páfi XVI sneri aftur til Vatíkansins í dag í fyrsta sinn frá því að lét af störfum fyrir tveimur mánuðum. Benedikt kom í þyrlu frá Gandolfo-kastala, sumardvalarstað sínum. Hann mun nú setjast að í Vatíkaninu.

Frans páfi tók vel á móti honum. Mánuður er síðan Benedikt sást síðast opinberlega. Hann er 86 ára gamall. Engar myndatökur voru leyfðar í Páfagarði af komu Benedikts og hefur það vakið spurningar um heilsufar hans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert