Erkibiskupinn laus allra mála

Philippe Barbarin, erkibiskup í Lyon.
Philippe Barbarin, erkibiskup í Lyon. AFP

Franskur saksóknari vísaði í dag frá ásökunum um að erkibiskupinn í Lyon, Philippe Barbarin, hafi vísvitandi hylmt yfir kynferðisbrot kaþólsks prests gagnvart ungum drengjum.

Barbarin var sakaður um að hafa hylmt yfir með presti sem er sakaður um barn­aníð í starfi og jafn­vel að hafa veitt öðrum fram­gang í starfi þrátt fyr­ir að maður­inn hafi verið dæmd­ur fyr­ir kyn­ferðis­legt of­beldi gagn­vart upp­komn­um náms­mönn­um.

Við lok bráðabirgðarannsóknar á hlut Barbarins  sagði saksóknarinn, Marc Cimamonti, að ekki hafi verið hægt að færa sönnur á að biskupinn hafi hylmt yfir kynferðisbrot innan kirkjunnar.

Barbarin hefur greint frá því að hann hafi árið 2007 fyrst frétt af því að presturinn, Bernard Preynat, hafi verið sakaður um að hafa beitt skátadrengi kynferðislegu ofbeldi á árum áður. Preynat var fyrst ákærður í janúar sl. eftir að fórnarlamb hans, sem presturinn á að hafa beitt ofbeldi á níunda áratug síðustu aldar, steig fram í fyrra. Í kjölfarið stigu fleiri fórnarlömb hans fram og greindu frá níðingsverkum prestsins sem enn var starfandi prestur innan kirkjunnar.

Barbar­in bað fórn­ar­lömb­in af­sök­un­ar við messu í mars sl. Barbar­in vísaði meðal ann­ars í Frans páfa og sagði að sér bæri skylda til þess að biðjast per­sónu­lega af­sök­un­ar á ill­virkj­um sem prest­ar hafi framið. Kardí­nál­inn sagði að sér bæri skylda til þess að biðjast af­sök­un­ar þrátt fyr­ir að hann hafi ekki verið í starfi kardí­nála þegar brot­in sem um ræðir voru fram­in.

Barbarin sagði í dag að hann fagnaði niðurstöðu saksóknara og bar lof á störf þeirra sem hafa staðið í framvarðarsveit í baráttunni gegn kynferðislegu ofbeldi.

Níðingsverk í skjóli kirkjunnar

Páfi fundaði með grunuðum 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert