Forseti Frakklands, Emmanuel Macron, hefur gert breytingar á ríkisstjórn sinni en nýir innanríkis-, landbúnaðar- og menningarmálaráðherrar voru kynntir til leiks í dag.
Fyrir tveimur vikum tilkynnti Gérard Collomb óvænt afsögn sína úr embætti innanríkisráðherra og hefur Macron skipað náinn samstarfsmann sinn úr La République En Marche-stjórnmálaflokknum, Christophe Castaner innanríkisráðherra í stað Collomb. Sá síðarnefndi snýr aftur heim til Lyon þar sem hann verður borgarstjóri.
Franskir fjölmiðlar segja að Macron hafi ákveðið að reka landbúnaðar- og menningarmálaráðherrana úr embætti þar sem hann taldi þá veika hlekki í ríkisstjórn landsins. Í þeirra stað hefur hann skipað tvo reynslumikla stjórnmálamenn í embættin.
Didier Guillaume, sem var áður í Sósíalistaflokknum, tekur við sem landbúnaðarráðherra af Stéphane Travert og Franck Riester, sem áður var þingmaður repúblikana, tekur við af útgefandanum fyrrverandi, Françoise Nyssen, í menningarmálaráðuneytinu.
Macron skipaði einnig nýjan ráðherra til að fara með samskipti við sveitarstjórnir, Jacqueline Gourault, og bíður hennar erfitt hlutverk við að sætta sveitarstjórnir við fyrirhugaðan niðurskurð í fjárlögum franska ríkisins fyrir næsta ár.
Mjög hefur dregið úr stuðningi við Macron og hefur hann ekki mælst jafnlítill og nú frá því Frakkar kusu sér nýjan forseta í maí 2017. Hann nýtur stuðnings um 30% kjósenda.