Börnum á vergangi vegna átaka fjölgar

30,5 milljónum fleiri börn eru vegalaus nú en árið 2000. …
30,5 milljónum fleiri börn eru vegalaus nú en árið 2000. Það er aukning um 80%. AFP

Yfir 250 milljónir barna hafa það betra í dag en fyrir 20 árum. Staðreyndin er hins vegar sú að eitt af hverjum fjórum börnum er þó enn svipt réttinum til öruggrar og heilbrigðrar bernsku, þar sem börn sem búa á átakasvæðum eða eru á flótta eru verst sett. Þá hefur börnum á vergangi fjölgað um 80% frá aldamótum.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu Barnaheilla – Save the Children, Global Childhood Report. Skýrslan kemur út árlega og í henni er lagt mat á 176 lönd með tilliti til aðgengis barna að heilbrigðisþjónustu, menntun, næringu og verndar gegn skaðlegum áhrifaþáttum eins og barnavinnu og barnahjónaböndum.

Færri börn rænd bernskunni

Skýrslan sýnir að náðst hefur umtalsverður árangur í heiminum við að vernda börn á bernskuárum. Árið 2000 var áætlað að 970 milljónir barna væru rændar bernskunni vegna þess að þau voru látin ganga í hjónaband, vegna þungunar, voru útilokuð frá menntun, voru veik, vannærð eða létu lífið vegna ofbeldis. Þessi tala hefur nú lækkað í 690 milljónir – sem þýðir að í það minnsta 280 milljónir barna hafa það betra í dag en þau hefðu haft fyrir tveimur áratugum.

„Þrátt fyrir gríðarlegar framfarir eru milljónir barna þó enn rændar bernskunni. Við verðum að halda áfram að ná til allra barna og tryggja að þau njóti þeirrar bernsku sem þau eiga rétt á,“ er haft eftir Helle Thorning-Schmidt, framkvæmdastjóra Barnaheilla – Save the Children International, í tilkynningu.

Börn að leik í bráðabirgðabúðum í Palu á indónesísku eyjunni …
Börn að leik í bráðabirgðabúðum í Palu á indónesísku eyjunni Sulawesi. Þúsundir barna eru enn heimilislaus, sex mánuðum eftir að jarðskjálfti og flóðbylgja reið yfir eyjuna. AFP

Staða barna hefur batnað í 173 löndum af 176

Skýrslan byggist á viðmiðum sem notuð hafa verið síðustu ár og kallast End of Childhood Index. Niðurstöður sýna að frá árinu 2000 hefur staða barna batnað í 173 löndum af 176. Það þýðir meðal annars að 4,4 milljónum færri börn deyja á hverju ári, 49 milljónum færri börn eru með þroskaskerðingu af völdum vannæringar, 130 milljónum fleiri börn ganga í skóla, 94 milljónum færri börn stunda vinnu, 11 milljónum færri stúlkur eru þvingaðar í hjónaband, 3 milljónum færri fæðingar eru meðal unglingsstúlkna og 12 þúsund færri börn eru myrt á ári hverju.

Af þeim átta áhrifaþáttum sem eiga mestan þátt í að ræna börn bernskunni, og fjallað er um í skýrslunni, er vergangur vegna átaka sá eini sem versnar. En 30,5 milljónum fleiri börn eru vegalaus nú en árið 2000. Það er aukning um 80%.

Ísland í 11. sæti

Singapúr trónir á toppnum yfir þau lönd sem búa best að börnum sínum ásamt átta öðrum löndum í Vestur-Evrópu og Suður-Kóreu sem verma tíu efstu sætin. Ísland er í 11. sæti. Mestu framfarirnar voru í sumum af fátækustu löndum heims eins og Síerra Leóne, Rúanda, Eþíópíu og Níger. Mið-Afríkulýðveldið er í neðsta sæti, Níger í því næst neðsta, þrátt fyrir nýlegar framfarir þar í landi, og Tsjad í þriðja neðsta. Í þessum þremur löndum er bernskunni hvað mest ógnað.

Thorning-Schmidt segir að ríkisstjórnir verða og geti gert meira til að hvert barn fái besta mögulega veganesti fyrir lífið í vöggugjöf. „Nauðsynlegt er að verja meira fjármagni til málaflokksins og skerpa á aðgerðum til að hvert einasta barn geti notið bernskunnar öruggt, heilbrigt og hamingjusamt.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert