Hótel sem notað var sem sóttkví hrundi

Flestir þeirra sem látist hafa af völdum öndunarfærasjúkdómsins COVID-19 eru …
Flestir þeirra sem látist hafa af völdum öndunarfærasjúkdómsins COVID-19 eru frá Kína. AFP

Um 70 manns eru fastir eftir að hótel sem notað var fyrir fólk í sóttkví vegna kórónuveirunnar hrundi í kínversku borginni Quanzhou. 

Að minnsta kosti tuttugu og þremur hefur verið bjargað úr rústum hótelsins samkvæmt BBC. Óvíst er hvað olli hruni hótelsins sem varð upp úr klukkan 13 í dag. 

Samkvæmt ríkismiðlum kínverskra stjórnvalda var hótelið notað sem sóttvarnahús fyrir einstaklinga sem hafa verið í nánu sambandi við fólk sem smitast hefur af kórónuveirunni sem veldur öndunarfærasjúkdómnum COVID-19.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert