Biden ekki með kórónuveiruna

Joe Biden, forsetaframbjóðandi Demókrata.
Joe Biden, forsetaframbjóðandi Demókrata. AFP

Joe Biden, forsetaframbjóðandi Demókrata og fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, tilkynnti á Twittersíðu sinni nú síðdegis að hann sé ekki smitaður af kórónuveirunni.

Hann er talinn hafa verið útsettur fyrir smiti eftir kappræður sínar við Donald Trump Bandaríkjaforseta aðfaranótt miðvikudagsins síðasta.

Tilkynnt var í nótt að Trump og Melania forsetafrú væru smituð.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert