Hershöfðingi ver valdaránið

Frá mótmælum í Yangon í Mjanmar í dag.
Frá mótmælum í Yangon í Mjanmar í dag. AFP

Leiðtogi valdaránsins í Mjanmar hefur reynt að réttlæta gjörðir sínar og herforingjastjórnarinnar í fyrsta sjónvarpsávarpinu sem hann birtir síðan herinn tók völdin í landinu fyrir viku.

Min Aung Hlaing hers­höfðingi og valda­mesti maður Mjan­mar í her­stjórn­inni sagði að kosningar sem fóru fram í landinu í nóvember hefðu ekki farið fram með viðeig­andi hætti og segir ótal dæmi um kosningasvindl eftir að NLD, flokkur Aung San Suu Kyi, sópaði að sér atkvæðum.

Fjölmenn mótmæli hafa verið haldin í landinu undanfarna þrjá daga en herinn handtók Suu Kyi, þáverandi leiðtoga landsins.

Tugir þúsunda komu saman á götum stærstu borga Mjanmar í dag og mótmæltu herforingjastjórninni. Samkvæmt frétt BBC voru kennarar, lögfræðingar, bankamenn og ríkisstarfsmenn á meðal mótmælenda.

Lögregluþjónar mæta mótmælendum en flest allt hefur þó farið friðsamlega …
Lögregluþjónar mæta mótmælendum en flest allt hefur þó farið friðsamlega fram hingað til. AFP

Einn mótmælenda sagði í samtali við fréttamann BBC að ungt fólk mótmælti af krafti. Það sætti sig ekki við einræðistilburði herforingjastjórnarinnar.

Einhverjir hafa slasast lítillega í mótmælunum og þá sprautuðu hermenn vatni á mótmælendur í einni borginni. Herinn notaði enn fremur ríkismiðil landsins til að vara fólk við mótmælum.

Frétt BBC.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert