Bretland og Ástralía komast nær samkomulagi

Ástralía gerir kröfu um að nautakjöt og lambakjöt frá þeim …
Ástralía gerir kröfu um að nautakjöt og lambakjöt frá þeim verði tollfrjálst Árni Sæberg

Bretland leggur kapp á að klára viðskiptasamning við Ástralíu og vonast er til að hægt verði að skrifa undir hann í byrjun næsta mánaðar.

Væri þetta fyrsti alþjóðlegi viðskiptasamningurinn, af þessari stærðargráðu, sem Bretar gera á sínum eigin forsendum eftir útgöngu þeirra úr Evrópusambandinu.

Vilja þeir ljúka við samninginn áður en ráðstefna G7 ríkjanna verður haldinn í Cornwall, Bretlandi, í næsta mánuði.

Landbúnaður í Bretlandi

Ástæðan fyrir því að ekki er búið að skrifa undir þennan samning ennþá er þau áhrif sem hann kann að hafa á landbúnað í Bretlandi. Ástralía gerir kröfu um að nautakjöt og lambakjöt frá þeim verði tollfrjálst og vilja ekki fallast á að settir verði kvótar á innflutning, 

Fyrrverandi utanríkisráðherra Ástralíu, Alexander Downer, hefur þó bent á að stærstu kaupendur að kjöti frá Ástralíu séu í Asíu svo Bretland þurfi ekki að óttast að þeir ætli sér að taka yfir markaðinn. Hinsvegar tekur hann ekki annað í mál en frjálst vöruflæði. 

Elizabeth Truss, und­ir­ráðherra í breska fjár­málaráðuneyt­inu, er bjartsýn á að samkomulag muni nást í tæka tíð sem gagnast geti öllum atvinnugreinum Bretlands, þar á meðal landbúnaði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert