Raforkuframleiðslu hætt í stærsta kjarnorkuverinu

Kjarnorkuverið í Sa­porisjía
Kjarnorkuverið í Sa­porisjía AFP

Raforkuframleiðslu hefur verið hætt í stærsta kjarnorkuveri í Evrópu í Sa­porisjía í Úkraínu en kjarnorkuverið lenti í víglínu á milli rúss­neskra og úkraínskra her­sveita sem kunnugt er. 

Orkufyrirtækið Energoatom greindi frá því í fréttatilkynningu að slökkt hefði verið á síðasta virka kjarnaofninum í kjarnorkuverinu í nótt. 

Í tilkynningunni kemur einnig fram að í framhaldinu eru gerðar viðeigandi ráðstafanir til að kæla ofninn. 

Bardagar nærri kjarnorkuverinu hafa verið áhyggjuefni um hríð þar sem hætta á alvarlegu slysi var raunhæf. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka