Flugskeyti Rússa hafnaði á háskóla og leikhúsi

Selenskí segir óbreytta borgara særða og látna vegna flugskeytis Rússa …
Selenskí segir óbreytta borgara særða og látna vegna flugskeytis Rússa sem hafnaði í borginni Chernihiv í dag. AFP

Forseti Úkraínu, Volodimír Selenskí, segir að óbreyttir borgarar hafi látist og særst er Rússar skutu í dag flugskeyti í átt að borginni Chernihiv, sem liggur um 150 kílómetra norður af Kænugarði. Flugskeytið hafnaði á torgi nálægt háskóla og leikhúsi. AFP greinir frá. 

Dagur sársauka og missis

„Þetta var venjulegur laugardagur sem Rússland ákvað að breyta í dag sársauka og missis,“ sagði Selenskí í samtali við fjölmiðla í morgun. 

Forsetinn hefur birt myndband af vettvangi sem sýnir rusl í kringum stóra byggingu frá Sovéttímanum og kyrrstæða bíla í kringum sem eyðilögðust að hluta. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert