Trump lætur Biden fá það óþvegið

Donald Trump segist í nýju myndskeiði á samfélagsmiðlinum X þurfa að velta Joe Biden Bandaríkjaforseta úr sessi í komandi forsetakosningum „vegna þess að landið okkar á við alvarlegan vanda að stríða”.

Trump kallar Biden jafnframt þorpara, eða „Crooked Joe” og segir hann versta forsetann í sögu Bandaríkjanna.

Forsetakosningarnar fara fram í nóvember næstkomandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert