Konur í fjölmiðlum hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna hegðunar Hjartar Hjartarsonar á HM í Rússlandi nú um helgina. Þær krefjast þess að yfirmenn fjölmiðla í landinu tryggi öryggi þeirra og annarra starfsmanna. „Við mótmælum því að í stéttinni starfi maður sem hefur ítrekað áreitt og beitt samstarfsfólk sitt ofbeldi.“
Fjölmiðlakonur á miðlum Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar, sem eru í eigu Sýnar, skrifuðu ekki undir yfirlýsinguna en sendu frá sér sína eigin þar sem fram kemur að þær hafi fengið staðfest frá yfirmönnum sínum að málið sé í formlegu ferli og sé litið alvarlegum augum. Yfirlýsingu þeirra má lesa neðst í fréttinni.
Hjörtur var kallaður heim frá Rússlandi af atvinnurekanda sínum, Sýn, fyrir hegðun sína. Heimildir herma að hann hafi veist að Eddu Sif Pálsdóttur, íþróttafréttakonu á RÚV, á laugardagskvöld.
Honum var vikið frá störfum hjá RÚV árið 2012 vegna ofbeldis sem hann beitti Eddu Sif sem kærði hann fyrir líkamsárás. Þá var hann sendur í leyfi frá störfum sínum á Stöð 2 árið 2014 eftir að hann réðst á samstarfsmann sinn.
„Alkóhólismi er alvarlegur sjúkdómur. Hann leiðir þó ekki sjálfkrafa til ofbeldishegðunar,“ segir í yfirlýsingu fjölmiðlakvenna. Þær segja ólíðandi að maður sem ítrekað hafi brotið á samstarfsfólki sínu fái sífellt ný tækifæri í fjölmiðlastétt á þeim forsendum að hann sé hættur að drekka. „Við höfnum því að vinna við slíkar aðstæður.“
„Við krefjumst þess að tekið sé fastar á ofbeldi og áreitni á vinnustöðum okkar. Við skorum einnig á starfsmenn fjölmiðla, stéttarfélög fjölmiðlafólks og sérstaklega yfirmenn Sýnar og annarra fjölmiðla að fylgja eftir fögrum fyrirheitum #MeToo og sýna í verki að þegar ofbeldi og ógnandi hegðun er beitt „kastast ekki í kekki“ milli fólks, heldur ber ofbeldismaðurinn einn ábyrgð á sinni hegðun.“
Yfirlýsinguna í heild sinni má lesa hér að neðan, en undir hana skrifa tugir fjölmiðlakvenna.
Við undirritaðar, konur í fjölmiðlum, krefjumst þess að yfirmenn fjölmiðla í landinu tryggi öryggi okkar og annarra starfsmanna sinna á vinnustað. Við mótmælum því að í stéttinni starfi maður sem hefur ítrekað áreitt og beitt samstarfsfólk sitt ofbeldi.
Hjörtur Hjartarson, íþróttafréttamaður hjá Sýn, hefur endurtekið orðið uppvís að því að ógna og veitast að samstarfsfólki sínu. Hirti var sagt upp störfum á RÚV árið 2012, eftir að hann beitti samstarfskonu sína ofbeldi sem varð til þess að hún kærði hann fyrir líkamsárás. Hún dró kæruna til baka eftir að hann axlaði ábyrgð og baðst afsökunar. Hjörtur var einnig sendur í leyfi frá störfum sem íþróttafréttamaður á Stöð 2 eftir að hann réðst á samstarfsmann sinn þar árið 2014. Á dögunum var Hjörtur svo sendur heim eftir að hafa veist á ný að fyrrverandi samstarfskonu sinni á RÚV þar sem hún var við störf á HM í knattspyrnu í Rússlandi.
Alkóhólismi er alvarlegur sjúkdómur. Hann leiðir þó ekki sjálfkrafa til ofbeldishegðunar. Við, konur í fjölmiðlum, teljum ólíðandi að maður sem ítrekað hefur brotið á samstarfsfólki sínu fái sífellt ný tækifæri í fjölmiðlastétt á þeim forsendum hann sé hættur að drekka. Við höfnum því að vinna við slíkar aðstæður.
Við krefjumst þess að tekið sé fastar á ofbeldi og áreitni á vinnustöðum okkar. Við skorum einnig á starfsmenn fjölmiðla, stéttarfélög fjölmiðlafólks og sérstaklega yfirmenn Sýnar og annarra fjölmiðla að fylgja eftir fögrum fyrirheitum #MeToo og sýna í verki að þegar ofbeldi og ógnandi hegðun er beitt „kastast ekki í kekki“ milli fólks, heldur ber ofbeldismaðurinn einn ábyrgð á sinni hegðun.
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, RÚV
Sunna Valgerðardóttir, RÚV
Ingibjörg Rósa Björnsdóttir, sjálfstætt starfandi blaðakona
Kristjana Arnarsdóttir, íþróttafréttakona á RÚV
Þórhildur Þorkelsdóttir, RÚV
Bára Huld Beck, Kjarninn
Alma Ómarsdóttir, RÚV
Ólöf Ragnarsdóttir, RÚV
Margrét Erla Maack, Kjarninn, áður RÚV og 365.
María Lilja Þrastardóttir, sjálfstætt starfandi blaðakona
María Björk Guðmundsdóttir, RÚV
Þórgunnur Oddsdóttir, RÚV
Auður Ösp Guðmundsdóttir, DV
Lovísa Árnadóttir, fv. íþróttafréttakona á RÚV
Milla Ósk Magnúsdóttir, RÚV
Eva Björk Ægisdóttir, sjálfstætt starfandi ljósmyndari
Ásdís Ólafsdóttir, fv. dagskrárgerðarmaður á RÚV
Ragnheiður Thorsteinsson, RÚV
Rannveig Jónína Guðmundsdóttir, Víkurfréttir
Lilja Katrín Gunnarsdóttir, Mannlíf og sjálfstætt starfandi
Viktoría Hermannsdóttir, RÚV
Gunnþórunnn Jónsdóttir, Fréttablaðinu
Snærós Sindradóttir, RÚV
Júlía Margrét Alexandersdóttir, Morgunblaðinu
Lára Ómarsdóttir, RÚV
Olga Björt Þórðardóttir, ritstjóri Fjarðarpóstsins
Ragnhildur Thorlacius, RÚV
Erla María Markúsdóttir, mbl.is
Anna Margrét Gunnarsdóttir, fv. blaðamaður á Nýju Lífi, Birtíngi
Sigríður Pétursdóttir, lausapenni hjá RÚV og fleiri fjölmiðlum
Ragnhildur Ásvaldsdóttir, sjálfstætt starfandi við dagskrárgerð
Vera Illugadóttir, RÚV
Aníta Estíva Harðardóttir, DV
Ragnhildur Aðalsteinsdóttir, Mannlífi
Kristborg Bóel, Austurglugganum og Austurfrétt
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ritstjóri Stundarinnar
Sara Sjöfn Grettisdóttir, ritstjóri Eyjafrétta
Anna Marsibil Clausen, sjálfstætt starfandi
Anna Margrét Björnsson, mbl.is
Ragna Gestsdóttir, DV
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir, mbl.is
Erla Hjördís Gunnarsdóttir, Bændablaðið
Erla Karlsdóttir, fv. blaðakona á DV
Brynhildur Björnsdóttir
Þórhildur Ólafsdóttir, RÚV
Þorgerður E. Sigurðardóttir, RÚV
Silja Ástþórsdóttir, fyrrverandi umbrotskona á Stundinni og fv. yfirhönnuður Fréttablaðsins
Birna Pétursdóttir
Anna Gyða Sigurgísladóttir, RÚV
Halla Þórlaug Óskarsdóttir, RÚV
Anna Lilja Þórisdóttir, Morgunblaðið
Lára Theódóra Kristjánsdóttir
Fanney Birna Jónsdóttir, Kjarninn og RÚV
Jóhanna Sveinsdóttir
Sigríður Elín Ásmundsdóttir
Áslaug Guðrúnardóttir, fyrrverandi fréttamaður RÚV
Anna Margrét Björnsson, mbl.is
Dagný Hulda Erlendsdóttir, RÚV
Kolbrún Björnsdóttir
Björg Magnúsdóttir, RÚV
Sigyn Blöndal, RÚV
Áslaug Karen Jóhannsdóttir
Ellen Karólínudóttir
Ásdís Ásgeirsdóttir
Lovísa Arnardóttir, Fréttablaðinu
Kristborg Bóel, Austurglugganum og Austurfrétt
Lára Hanna Einarsdóttir, sjálfstætt starfandi
Ástríður Viðarsdóttir, fv. blaðamaður mbl.is
Þóra Tómasdóttir
Steinunn Stefánsdóttir, fv. aðstoðarritstjóri á Fréttablaðinu
Erla Tryggvadóttir, fv. starfsmaður RÚV
María Erla Kjartansdóttir, Birtíngi
Inga Lind Vigfúsdóttir, RÚV
Auður Albertsdóttir, fyrrv. blaðakona mbl.is
Gyða Lóa Ólafsdóttir, fyrrverandi blaðakona Fréttablaðinu
Við fordæmum hegðun Hjartar á heimsmeistaramótinu. Allir eiga að geta sinnt starfi sínu óáreittir, hvort sem það er í vinnuferð eða á vinnustað og að sjálfsögðu er annað óásættanlegt.
Við höfum fengið staðfest frá yfirmönnum okkar að málið er í formlegu ferli og litið alvarlegum augum. Við viljum að málið sé afgreitt og niðurstaða fáist áður en við tjáum okkur opinberlega. Þess vegna munum við ekki skrifa undir opinbera yfirlýsingu að svo stöddu.