Andlát: Pétur Sigurðsson

Pétur Sigurðsson.
Pétur Sigurðsson.

Pétur Sigurðsson, fyrrverandi forseti Alþýðusambands Vestfjarða, er látinn á 87. aldursári.

Pétur fæddist á Ísafirði 18. desember 1931, sonur hjónanna Sigurðar Péturssonar vélstjóra og Gróu Bjarneyjar Salómonsdóttur húsmóður og verkakonu. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Ísafjarðar 1948, vélvirkjanámi hjá vélsmiðjunni Þór hf. á Ísafirði 1957 og vélfræðiprófi frá rafmagnsdeild Vélskólans í Reykjavík 1960.

Að námi loknu starfaði hann hjá Rafmagnsveitum ríkisins á Vestfjörðum til 1970 en frá þeim tíma var hann starfsmaður verkalýðsfélaganna á Ísafirði og Alþýðusambands Vestfjarða og jafnframt framkvæmdastjóri Alþýðuhússins og Ísafjarðarbíós 1970-87.

Pétur var forystumaður í íslenskri verkalýðshreyfingu um hálfrar aldar skeið. Hann var formaður Iðnnemafélags Ísafjarðar og síðan Félags járniðnaðarmanna á Ísafirði 1962-66 og 1968-69, var varaformaður verkalýðsfélagsins Baldurs 1969-72 og síðan formaður þess 1974-2002, sat í stjórn Alþýðusambands Vestfjarða (ASV) frá 1964 og forseti þess frá 1970, en með stofnun Verkalýðsfélags Vestfirðinga árið 2002 leysti félagið af hólmi hlutverk ASV. Pétur var formaður þess félags til 2007.

Pétur sat í stjórn Verkamannasambands Íslands og í miðstjórn ASÍ um skeið, var formaður stjórnar atvinnuleysistryggingasjóðs og sat í framkvæmdastjórn Starfsgreinasambands Íslands.

Pétur starfaði í Félagi ungra jafnaðarmanna á Ísafirði og síðar Alþýðuflokknum, sat í bæjarstjórn Ísafjarðar og var varaþingmaður Alþýðuflokksins í Vestfjarðakjördæmi 1991-95. Hann var formaður stjórnar Rafveitu Ísafjarðar 1964-72 og sat í stjórn Togaraútgerðar Ísafjarðar meðan félagið gerði út skuttogarann Skutul ÍS.

Pétur var formaður knattspyrnufélagsins Vestra á Ísafirði 1954–77 og lék knattspyrnu með félaginu og úrvalsliði ÍBÍ í mörg ár.

Eiginkona Péturs er Hjördís Hjartardóttir, fv. tryggingafulltrúi hjá sýslumannsemættinu á Ísafirði. Börn þeirra eru Sigurður og Edda.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert