Mesti fjöldi herskipa hér við land á friðartímum

Á Miðbakka eru kanadísku freigáturnar Charlottetown og Halifax en skammt …
Á Miðbakka eru kanadísku freigáturnar Charlottetown og Halifax en skammt frá er freigátan Hvidbjørnen. mbl.is/Árni Sæberg

„Við röðum þessum skipum bara upp eins og kubbum sem þurfa að falla sem best að bryggjunni. Við þá vinnu skiptir lengd skipa mestu máli og hversu djúpt þau rista,“ segir Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna, í samtali við Morgunblaðið í dag og vísar í máli sínu til þess mikla fjölda herskipa Atlantshafsbandalagsins (NATO) sem nú liggur við bryggju á höfuðborgarsvæðinu.

Gísli telur þetta vera stærstu heimsókn herskipa hingað til lands á friðartímum, en í Reykjavík eru alls níu herskip. Koma þrjú þeirra frá Bandaríkjunum, þrjú frá Kanada, tvö frá Bretlandi og eitt frá Danmörku. Í Hafnarfirði má finna tíunda herskipið og er það frá Frakklandi. Þá er bandaríska þyrluflugmóðurskipið USS Iwo Jima stærsta herskip sem sótt hefur landið heim á friðartímum, en það er 257 metra langt, 32 metrar á breidd og 57.091 tonn.

Er skipið sérútbúið til að flytja fjölmennt innrásarlið að landi með skjótum hætti og má um borð meðal annars finna fjölbreytt úrval af árásar- og flutningsþyrlum. Skipin eru hingað komin vegna heræfingar NATO, Trident Juncture, sem haldin verður á Atlantshafi og í Noregi. Munu skipin halda úr höfn á morgun, sunnudag, og taka stefnuna á Noreg.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert