Tilkynnt var um meðvitundarlausan mann í Elliðaárdal við stíflu upp úr klukkan sjö í gærkvöldi. Sjúkrabíll og lögregla voru kölluð á vettvang.
Maðurinn reyndist vera í annarlegu ástandi. Eftir skoðun áhafnar sjúkrabifreiðar var hann handtekinn og vistaður í fangageymslu lögreglunnar sökum ástands.
Um hálftvöleytið í nótt voru afskipti höfð af konu í annarlegu ástandi í Hafnarfirði þar sem hún stóð við bifreið í innkeyrslu að bílageymslu. Hún var handtekin og vistuð í fangageymslu.
Lögreglan stöðvaði sex ökumenn í gærkvöldi og í nótt grunaða um ölvun við akstur eða akstur undir áhrifum fíkniefna. Upp úr klukkan sjö í gærkvöldi var ein bifreið stöðvuð í Kópavogi eftir að tilkynnt hafði verið um rásandi aksturslag hennar. Ökumaðurinn er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og akstur án réttinda.