Fann pabba sinn í Ekvador 29 ára

Fjölskylda. Francisco, Ricardo, Sofia, Ólafur og Diego, í Chicago 2014, …
Fjölskylda. Francisco, Ricardo, Sofia, Ólafur og Diego, í Chicago 2014, yngsta systirin Victoria var ekki fædd þá.

Ólafur F. Cucalon Rowell hafði ekki hugmynd um að hann ætti föður í Ekvador fyrr en hann var 29 ára.

Ólafur var talinn sonur Svía sem vildi ekkert af honum vita og alinn upp af móður sinni á Íslandi. Bréf sem fannst í dánarbúi langömmu hans kom af stað atburðarás sem leiddi til þess að faðir hans fannst í Ekvador og þeir feðgar tóku upp samband.

Ólafur hefur aldrei upplifað sig sem Skandinava og fannst hann kominn heim þegar hann heimsótti föður sinn til Ekvador í fyrsta skipti. Í kaupbæti fékk hann tvo bræður og systur, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert