Tilhögun verkfalla félagsmanna Eflingar

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar á Ingólfstorgi á síðasta ári.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar á Ingólfstorgi á síðasta ári. mbl.is/​Hari

Vegna boðaðs verkfalls hjá Reykjavíkurborg á morgun hefur Efling - stéttarfélag greint frá því hvernig tilhögun verður á leikskólum á skóla- og frístundasviði borgarinnar og við umönnunarstörf á velferðarsviði borgarinnar.

Á leikskólum á skóla- og frístundasviði lokar deild þegar og ef deildarstjóri er félagsmaður í Eflingu. Óheimilt er að færa starfsmenn á lokaðri deild sem eru í öðrum stéttarfélögum yfir í störf á öðrum deildum.

Afleysing er eingöngu heimil í upprunalegum tilgangi (undirbúningur, veikindi) en ekki til að ganga í störf starfsfólks í verkfalli.

Barn með sérþarfir sem er á deild sem ekki er lokuð vegna verkfalls getur sótt leikskólann þótt starfsmaður Eflingar sem venjulega sinnir viðkomandi barni sé í verkfalli, að því er segir í tilkynningu Eflingar.

Þetta þýðir að:

  • Ef barnið er á deild þar sem deildarstjórinn er Eflingarstarfmaður þá er barnið heima.
  • Ef barnið er á deild þar sem deildarstjórinn er í öðru stéttarfélagi þá getur barnið mætt þrátt fyrir að Eflingarstarfsmaður hafi sinnt barninu, en sú þjálfun sem Eflingarstarfsmaður hefur verið að sinna með barninu fellur niður á meðan verkfall stendur.

Undanþága á velferðarsviði

Efling - stéttarfélag hefur fallist á að veita undanþágu til að hægt sé að sinna nauðsynlegri félags- og öryggisþjónustu á velferðarsviði. Áréttað er að ekki hefur að öllu jöfnu verið veitt undanþága vegna þrifa og tiltektar og er öðrum starfsmönnum óheimilt að sinna þessum störfum.

Einungis æðstu stjórnendum rekstrareininga er heimilt að ganga í störf annarra. Dæmi um æðstu stjórnendur eru leikskólastjóri og forstöðumaður stofnunar. Dæmi um rekstrareiningu er leikskóli með fleiri en eina starfsstöð.

Almennir starfsmenn sem ekki eru í verkfalli mega sinna sínum reglubundnu verkefnum en ekki öðrum eða fleiri verkefnum.

Dæmi um verkfallsbrot almennra starfsmanna sem ekki eru í verkfalli sbr. framangreint:

  • Starfsmaður vinnur lengri vinnudag en vanalega.
  • Starfsmaður sinnir verkefnum sem hann alla jafna gerir ekki (gengur í störf annarra)
  • Starfsmaður afsalar sér kaffitímum eða matartímum.

Stjórnandi sem beinir fyrirmælum/beiðnum til undirmanna sinna sem geta falið í sér eitthvað framangreint er verkfallsbrjótur.

„Efling - stéttarfélag krefst þess að réttur sinn til að berjast fyrir kaupi og kjörum sé virtur af öllum hlutaðeigandi og minnir á ákall annarra stéttarfélaga til sinna félagsmanna að ganga ekki í störf Eflingarfólks. Efling - stéttarfélag skorar á hvern þann sem telur verkfallsbrot hafa verið framið að tilkynna slíkt til félagsins með tölvupósti á verkfallsbrot@efling.is eða í s. 5107500,“ segir í tilkynningunni.

Efling - stéttarfélag mun sinna verkfallsvörslu eins og við verður komið á meðan á verkfalli stendur.

„Minnt er á að verkfallsréttur er grundvallarréttur vinnandi fólks og ber að meðhöndla hann sem slíkan af öllum hlutaðeigandi. Markmið verkfalla er að knýja aðila til samninga með því að leggja niður störf að hluta eða öllu leyti og lögum samkvæmt er þeim sem verkfallsboðun beinist gegn, óheimilt að stuðla að því að afstýra henni með nokkrum hætti. Stjórnandi sem beinir því til starfsmanna að taka að sér nýjar og/eða útvíkkaðar skyldur sökum verkfalls sem skollið er á, er með því að fremja verkfallsbrot.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert