Lét ófriðlega með fíkniefni í flugstöðinni

Maðurinn var handtekinn í Leifsstöð við komuna til landsins.
Maðurinn var handtekinn í Leifsstöð við komuna til landsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Karlmaður á fertugsaldri sem lögreglan á Suðurnesjum handtók í Flugstöð Leifs Eiríkssonar fyrr í mánuðinum reyndist vera með tæplega 300 grömm af metamfetamíni og 1.600 stykki af sterkum lyfseðilsskyldum lyfjum í fórum sínum.

Lögreglan greinir frá því, að tollgæslan hafi stöðvað manninn við komuna til landsins og fann pakkningu með metamfetamíninu sem var vafin föst við maga hans.

Hún segir enn fremur, að maðurinn hafi látið ófriðlega við afskipti tollvarða og lögreglu. Hann var vistaður í fangaklefa en síðan úrskurðaður í gæsluvarðhald að skýrslutöku lokinni.

„Maðurinn hefur áður komið við sögu hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Þá fundust fíkniefni við húsleit hjá honum, auk kylfu, rafbyssu og rúmlega tveggja milljóna króna  í íslenskri og erlendri mynt, sem lögregla taldi vera ágóða af fíkniefnasölu. Einnig fundust níu lítrar af landa.

Rannsóknin nú snýr að brotum á lögum um ávana- og fíkniefni, brot á lyfjalögum og peningaþvætti,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert