Skjálftinn fannst víða

Kort/Veðurstofa Íslands

Jarðskjálfti af stærð 4,1 varð klukkan 4:33 í morgun sem átti upptök sín um 8 km norðaustur af Reykjanestá. Nokkrir eftirskjálftar fylgdu í kjölfarið. Tilkynningar bárust til jarðvársviðs Veðurstofu Íslands af Reykjanesi og höfuðborgarsvæðinu um að skjálftinn hefði fundist þar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert