51 smit í gær og færri sýni tekin en vanalega

Sýnataka við Suðurlandsbraut.
Sýnataka við Suðurlandsbraut. mbl.is/Árni Sæberg

Alls smituðust 51 af kórónuveirunni innanlands í gær, þar af voru 20 í sóttkví við greiningu en 31 utan sóttkvíar. Nú liggja 15 alls inni á Landspítala með Covid-19, þar af tveir á gjörgæslu.

Einn lést vegna Covid-19 á Landspítalanum í gær og eru því alls 33 látnir það sem af er faraldrinum, þar af þrír í yfirstandandi bylgju.

1.817 eru í sóttkví og fækkar þeim milli daga, eins fækkar þeim sem eru í einangrun og eru þeir nú alls 844.

Um 2 þúsund sýni voru tekin í gær, talsvert færri en í fyrradag þegar um 4 þúsund sýni voru tekin og voru þar af 84 jákvæð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert