91 smit innanlands

Sýnataka vegna kórónuveirunnar.
Sýnataka vegna kórónuveirunnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

91 greindist með kór­ónu­veiruna inn­an­lands í gær, þar af voru 40 í sóttkví við greiningu. Þetta kem­ur fram á Covid.is. 29 af þeim sem greind­ust voru óbólu­sett­ir og var bólusetning hafin hjá þremur. Þrjú smit greind­ust á landa­mær­un­um.

17 eru á sjúkra­húsi, þar af fimm á gjör­gæslu.

Tek­in voru 3.372 sýni, þar af 1.695 ein­kenna­sýni.

938 eru nú í ein­angr­un vegna Covid-19, en voru 932 í gær. 1.195 eru nú í sótt­kví, en voru 1.200 í gær.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert