Fá alvarleg tilfelli og engin dauðsföll

Bóluefni blandað.
Bóluefni blandað. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Guðmund­ur Karl Snæ­björns­son heimilislæknir bendir á, í aðsendri grein sinni í Morgunblaðinu í morgun, að fá börn hafi orðið alvarlega veik af Covid-19 og engin dauðsföll orðið í aldurshópnum 5-11 ára í Svíþjóð og Þýskalandi, þar sem faraldsfræðilegar rannsóknir hafi verið gerðar á milljónum barna.

„Sænsk rann­sókn Ludvigs­sons á 1.951.905 börn­um í Svíþjóð á aldr­in­um 1-16 ára, sem sóttu skóla að mestu án nánd­ar­tak­mark­ana eða notk­un­ar and­lits­gríma, sýndi eng­in dauðsföll hjá börn­un­um. Þrátt fyr­ir að Svíþjóð hafi haldið leik­skól­um og grunn­skól­um sín­um opn­um kom í ljós mjög lág tíðni al­var­legra Covid-19-ein­kenna hjá þess­um börn­um,“ segir í grein Guðmundar Karls.

Þá segir hann að nýleg þýsk rannsókn sem náði til barna og unglinga sem lagst hafa inn á sjúkrahús vegna kórónuveirunnar hafi sýnt að ekkert barn hafi látist af þeim völdum.

Spyr hver ávinningurinn sé

Guðmundur Karl er einn þeirra sem geldur varhug við bólusetningu barna á aldrinum 5-11 ára við Covid-19. Segir hann að þar sem Ómíkrón-afbrigði veirunnar sé svo mikið stökkbreytt, sé um nýjan stofn veirunnar sé að ræða. Rannsóknir á veirunni hafi að mestu farið fram áður en til stökkbreytingarinnar kom. 

Segir Guðmundur virkni bóluefna sem notast hefur verið við bólusetningu fullorðinna litla og spyr hvers vegna virknin ætti að vera meiri hjá börnum en óvissa um aukaverkanir vera nokkrar. Því spyr hann sig hver ávinningur bólusetningar þessa aldurshóps sé. 

Grein Guðmundar Karls geta áskrifendur Morgunblaðsins nálgast hér.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka