„Mjög dapurt“ að fresta þurfi fundi um bankasöluna

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir. mbl.is/Arnþór Birkisson

Formaður fjárlaganefndar segir „mjög dapurt“ að þurfa að fresta fundi fjárlaganefndar og bankasýslu ríkisins vegna sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Bankasýslan bað um að fundinum yrði frestað. 

„Mér finnst í raun bara mjög dapurt að þurfa að fresta þessum fundi þar sem það hefur legið fyrir síðan snemma í apríl að halda eigi þennan fund. Ég er frekar ósátt með það,“ segir Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, formaður fjárlaganefndar og þingmaður Vinstri grænna. 

Hvers vegna var fundinum frestað?

„Í raun var bara óskað eftir því af hálfu bankasýslunnar að fá að fresta fundi þar sem fyrir lægju ekki öll gögn. Þeir vildu ekki koma á fund nema með því að hafa með sér öll gögn og svör við öllum spurningum sem nefndin hafði borið á borð fyrir þá,“ segir Bjarkey. 

Hún tekur undir ummæli Bryndísar Haraldsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, sem sagði í samtali við Morgunblaðið að það væri „eig­in­lega óá­sætt­an­legt með öllu“ að bankasýslan hafi óskað eftir frestun.

Lokaður fundur í dag, opinn á miðvikudag

Bjarkey gerir ráð fyrir því að fundurinn fari fram á miðvikudag og verður hann þá opinn. Í dag verður haldinn hefðbundinn lokaður fundur um fjármálaáætlun. 

Salan hefur hlotið verulega gagnrýni og ákvað ríkisstjórnin að leggja bankasýsluna niður í kjölfarið. 

Fjár­laga­nefnd hef­ur óskað eft­ir svör­um við spurn­ing­um í 19 töluliðum en séu stafliðir tald­ir með telja þær á fimmta tug. Er þar spurt meðal ann­ars um hvernig hafi verið staðið að vali söluaðila á hluta­bréf­um rík­is­sjóðs í Íslands­banka, hvers vegna inn­lend­ir söluaðilar hafi verið fimm tals­ins og hvernig samið hafi verið um þókn­un til þeirra aðila.

Jón Gunn­ar Jóns­son for­stjóri banka­sýsl­unn­ar gaf ekki kost á viðtali þegar Morg­un­blaðið leitaði eft­ir því í gær­kvöldi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka