Nokkrir í haldi á Keflavíkurflugvelli

Þeir sem eru í haldi eru taldir tengjast glæpahópum.
Þeir sem eru í haldi eru taldir tengjast glæpahópum. mbl.is/Eggert

Nokkrir eru í haldi á Keflavíkurflugvelli vegna meintra tengsla við glæpahópa. 

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðaði lögregluna á Suðurnesjum og ríkislögreglustjóra við aðgerðirnar, sem beindust gegn nokkrum einstaklingum.

Hópurinn talinn tengjast vélhjólaklúbbum

Þetta staðfestir Elín Agnes Eide Kristínardóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn í samtali við mbl.is en Vísir greindi fyrst frá málinu. Kemur þar fram að ákvörðun verði tekin um brottvísun hópsins.

Viðbúnaður er á vellinum og er hópurinn talinn tengjast vélhjólaklúbbum að því er heimildir mbl.is herma. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert