Harma ofstækisfulla orðræðu og hvetja til stillingar

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands harmar neikvæða og ofstækiskennda orðræðu í tengslum við kjaraviðræður, nú síðast í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins og miðlunartillögu ríkissáttasemjara. Þetta kemur fram í ályktun sem miðstjórnin sendi frá sér fyrir stundu.

Hvatt er til stillingar og varað við því að kjaradeila, sem sé eðlilegur og viðtekinn framgangsmáti á vinnumarkaði, sé túlkuð á þann veg að réttmætt sé að ausa fúkyrðum og hatri yfir þau sem að þessum verkefnum koma.

Eðlilegt að takast á um álitaefni

„Mikilvægt er að álitamál fái viðhlítandi meðferð og ótækt er að ágreiningur sé nýttur til að hafa í frammi haturskennd og viðurstyggileg ummæli í garð tiltekinna einstaklinga, hópa og samtaka. Eðlilegt er að tekist sé á um hin ýmsu álitaefni og að fram komi ólík sýn til margra grunnþátta samfélagsins. Þetta á augljóslega við um þær reglubundnu kjaraviðræður sem fram fara í landinu og þá hagsmuni sem þar eru í húfi,“ segir í ályktuninni.

Alþýðusamband Íslands muni ávallt fordæma slíka framgöngu og  standa vörð um þau gildi lýðræðis og mannvirðingar sem liggi hreyfingu launafólks til grundvallar.

Miðstjórn ASÍ fordæmir fúkyrðaflaum og ofstækisfulla orðræðu.
Miðstjórn ASÍ fordæmir fúkyrðaflaum og ofstækisfulla orðræðu. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert