Íslenska landsliðið hlaðið viðurkenningum

Íslenski landsliðshópurinn var glæsilegur á lokaathöfn Euroskills 2023 sem fram …
Íslenski landsliðshópurinn var glæsilegur á lokaathöfn Euroskills 2023 sem fram fór í Gdansk í Póllandi ásamt Sigurði Borgari Ólafssyni, liðsstjóra. mbl.is/Aðsend

Íslendingar hafa aldrei átt fleiri keppendur á Evrópumóti iðn-, verk- og tæknigreina, Euroskills, en á mótinu sem lauk í gær.

Fjórir íslenskir keppendur náðu framúrskarandi árangri og hlutu fyrir vikið viðurkenninguna „Medallion for Excellence“.

Irena Fönn úr Verkmenntaskólanum á Akureyri hlaut sérstök verðlaun fyrir að vera stigahæsti keppandinn í íslenska landsliðinu, en hún keppti í hársnyrtiiðn.

Dagana 5. til 9. september fór Evrópumótið Euroskills 2023 fram í Gdansk í Póllandi og voru ellefu keppendur frá Íslandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Verkiðn.

Frábær andi í hópnum

„Árangur íslenska landsliðsins var mjög góður og andinn í hópnum var frábær,“ er haft eftir Georg Páli Skúlasyni, formanni Verkiðnar / Skills Iceland.

„Það sem er kannski mikilvægast er að keppendur hafa safnað mikilvægri reynslu og minningum sem þau varðveita til framtíðar. Ísland hefur aldrei sent jafn marga fulltrúa í Euroskills, en ætla má að íslenski hópurinn hafi talið um 40 manns með þjálfurum og aðstoðarfólki.

Ég er afskaplega stoltur af þessum hópi og er sannarlega bjartsýnn á framtíðina þegar kemur að iðn- og verknámi á Íslandi.“

Íslendingarnir sem hlutu viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur eru:

  • Irena Fönn Clemmensen, Verkmenntaskólanum á Akureyri, fyrir framúrskarandi árangur í keppni í hársnyrtiiðn.
  • Finnur Guðberg Ívarsson, Hótel- og matvælaskólanum, fyrir framúrskarandi árangur í keppni í bakaraiðn.
  • Benedikt Máni Finnsson, Tækniskólanum, fyrir framúrskarandi árangur í keppni í iðnaðarstýringum.
  • Hinrik Örn Halldórsson, Hótel- og matvælaskólanum, fyrir framúrskarandi árangur í keppni í matreiðslu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka