Drónar geta truflað hugsanlegt vísindaflug

Drónaflug hefur verið bannað nálægt Grindavík, m.a. til þess að …
Drónaflug hefur verið bannað nálægt Grindavík, m.a. til þess að trufla ekki hugsanlegt vísindaflug yfir svæðið. mbl.is/Árni Sæberg

Samgöngustofa bannaði drónaflug nálægt Grindavík að beiðni almannavarna í dag.

Var þetta annars vegar gert til að koma í veg fyrir að flygildin trufli hugsanlegt vísindaflug og hins vegar til að tryggja að fólk fari ekki inn á skilgreind hættusvæði, að sögn upplýsingafulltrúa Samgöngustofu.

Að beiðni almannavarna

Búið er að banna dróna­flug fyr­ir ofan og ná­lægt Grinda­vík vegna yf­ir­vof­andi eld­goss í ná­grenn­inu. Dróna­flug á veg­um rík­is­lög­reglu­stjóra, al­manna­varna og Land­helg­is­gæsl­unn­ar er und­anþegið.

„Þetta eru í rauninni bara tvær ástæður: vísindaflug, sem getur reynst nauðsynlegt en almannavarnir gætu þurft að svara meira um hvort það sé fyrirhugað, og hins vegar er verið að tryggja það að fólk sé ekki á svæðinu,“ segir Þórhildur Elín Elínardóttir, upplýsingafulltrúi Samgöngustofu, í samtali við mbl.is, spurð hvers vegna drónaflug hefur verið bannað. 

Hún bætir við að það hafi verið gert að beiðni almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra.

Ekki má fljúga dróna á merktu svæði frá og með …
Ekki má fljúga dróna á merktu svæði frá og með deginum í dag til miðnætt­is 29. nóv­em­ber. Kort/Isavia

„Ekki kunnugt um að hafið gos sé haldið leyndu“

Þórhildur segist ekki kannast við það hvort ákvörðunin hefði verið tekin vegna einhverra nýrra upplýsinga um þróun jarðhræringanna á Suðurnesjum.

Aðspurð segist hún ekki geta fullyrt um það hvort fjölmiðlar geti fengið undanþágu frá þessu banni en efast þó um að svo verði.

Í augnablikinu séu aðeins rík­is­lög­reglu­stjóri, al­manna­varnir og Land­helg­is­gæsl­an undanþegin frá banninu. 

„En hins vegar geri ég ráð fyrir að slíkar beiðnir yrðu skoðaðar, komi til þess að það verði nokkuð sjónrænt að sjá,“ segir hún að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert