Rannsóknarboranir vegna Sundabrautar

Dýpkunarpramminn Ýmir liggur við Vogabakka. Starfsmenn Ístaks gera hann kláran …
Dýpkunarpramminn Ýmir liggur við Vogabakka. Starfsmenn Ístaks gera hann kláran fyrir verkefnið. mbl.is/sisi

Jarðtækniboranir eru hafnar í vegstæði Sundabrautar. Þær hafa staðið yfir með hléum frá því í byrjun janúar.

Helga Jóna Jónasdóttir, verkefnisstjóri Sundabrautar hjá Vegagerðinni, segir að stoðdeild Vegagerðarinnar sjái um boranirnar, bæði á landi og sjó. Þær miði að því að kanna dýpi niður á klöpp og burðarhæfi jarðlaga í vegstæðinu.

Borað hefur verið á nokkrum stöðum á Kjalarnesi og í Geldinganesi en ekki eru hafnar boranir í Gufunesi.

Helga Jóna segir að til standi að hefja sambærilegar rannsóknir á hafsbotni fyrir páska, vonandi strax í næstu viku, Unnið er að standsetningu borpramma í Sundahöfn vegna þessara rannsókna. Reiknað er með að byrja í Kleppsvík. Notaður verðu pramminn Ýmir RE, sem er í eigu Ístaks.

Hægt er að nálgast umfjöllunina í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert