Nýr leikskóli rís í Hamranesi

Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri og Eggert Jónsson, framkvæmdastjóri Þarfaþings.
Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri og Eggert Jónsson, framkvæmdastjóri Þarfaþings. Mynd/Hafnarfjarðarbær

Framkvæmdir eru hafnar við byggingu sex deilda leikskóla við Áshamar 9 í Hamraneshverfi í Hafnarfirði.

Í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ segir að bærinn hafi óskað eftir tilboðum í leikskólann í byrjun desember. Um alútboð var að ræða og bjóðendur beðnir um að vinna samkeppnistillögur að húsnæði fyrir nýja leikskóla. 

Sjö tilboð bárust og samþykkti umhverfis- og framkvæmdarráð Hafnarfjarðar á fundi sínum í janúar að taka tilboði Þarfaþings hf. sem bauð 877.544.044.- kr. í verkið. Kostnaðarviðmið verkkaupa var 984.000.000. Framkvæmdir við leikskólann eru hafnar sem einkennast af hagkvæmni og nýjum lausnum og leiðum.

„Leikskólabörnum er að fjölga mikið í Hamranesi um þessar mundir enda hefur mikil íbúðauppbygging átt sér stað þar undanfarin misseri. Ákveðið var að leita nýrra leiða við byggingu leikskóla í hverfinu sem bæði myndi stytta framkvæmdatíma og verða hagkvæmari en hefðbundnar byggingar. Þessi framkvæmd lofar góðu og er tilhlökkunarefni að nýr leikskóli opni og taki á móti yngstu íbúum Hamraness,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar. 

Fyrsta skóflustungan var tekin fyrir nokkrum vikum síðan.
Fyrsta skóflustungan var tekin fyrir nokkrum vikum síðan. Mynd/Hafnarfjarðarbær

Til viðbótar í hverfinu er gert ráð fyrir tveggja hliðstæðu grunnskóla og fjögurra deilda leikskóla auk hjúkrunarheimilis og er undirbúningur að hvorutveggja í fullum gangi.

Verklok áætluð í febrúar 2025

Þarfaþing hefur þegar hafist handa við uppbygginguna og mun byggja og fullgera húsnæðið án lóðar og bílastæða og skila því fullbúnu til notkunar. Leikskólinn verður byggður upp með Modules timbureiningum sem settar eru saman í verksmiðju við bestu aðstæður. Einingarnar eru fluttar fullbúnar með veggjum, gólfi og þaki á verkstað og þeim raðað saman teikningum samkvæmt.

Leikskólinn verður á einni hæð í L-laga formi um eitt miðsvæði sem mun halda utan um starfsemina og leikskólalóðina auk þess að mynda skjól. Hönnun lóðarinnar er komin á lokastig og að lokinni hönnun verður lóðin boðin út. Lóð leikskólans á að vera tilbúin þegar leikskólinn verður opnaður í febrúar 2025.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert