mbl | sjónvarp

Skoraði fullkomna þrennu í fyrri hálfleik (myndskeið)

ÍÞRÓTTIR  | 15. apríl | 19:57 
Cole Palmer fór á kostum í fyrri hálfleik í leik Chelsea og Everton í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla í kvöld.

Cole Palmer fór á kostum í fyrri hálfleik í leik Chelsea og Everton í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla í kvöld.

Palmer gerði sér lítið fyrir og skoraði fullkomna þrennu í hálfleiknum.

Hann byrjaði á því að skora með hnitmiðuðu vinstri fótar skoti eftir laglegan samleik við Nicolas Jackson, fylgdi svo skoti Jacksons sem var varið á eftir með skalla af stuttu færi og skoraði svo með hægri fótar skoti af mjög löngu færi eftir skelfileg mistök Jordan Pickfords í marki Everton.

Staðan í hálfleik er 4:0 fyrir Chelsea.

Loading