mbl | sjónvarp

Þrumufleygur Kovacic á topplistanum (myndskeið)

ÍÞRÓTTIR  | 16. apríl | 14:11 
Mateo Kovacic, miðjumaður enska knattspyrnufélagsins Manchester City, skoraði eitt af mörkum 33. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu.

Mateo Kovacic, miðjumaður enska knattspyrnufélagsins Manchester City, skoraði eitt af mörkum 33. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu.

Kovacic var í byrjunarliði City sem tók á móti Luton á Etihad-vellinum í Manchester en leiknum lauk með stórsigri City, 5:1.

Kovacic skoraði annað mark City á 64. mínútu með frábæru skoti, utarlega í teignum, en þetta var hans fyrsta mark í deildinni á tímabilinu.

Myndband af bestu mörkum 33. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.

Loading