Michael Olise skoraði tvívegis og þeir Jean-Philippe Mateta og Tyrick Mitchell komust einnig á blað er Crystal Palace vann stórsigur á Manchester United á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.
Er um stærsta tap United á leiktíðinni að ræða, en heimamenn léku á als oddi.
Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann Sport.