Yfirgnæfandi meirihluti landsmanna er hlynntur frekari virkjun orku í landinu, en andstaðan hverfandi, samkvæmt skoðanakönnun Gallup um umhverfismál, sem gerð var fyrir Samtök atvinnulífsins (SA). Meira
„Næstu fjögur til fimm árin verða mjög erfið og líkur á að einhverjar raforkuskerðingar verði og það bætir ekki úr skák að við erum að fara inn í næsta ár með mjög lága vatnsstöðu í uppistöðulónum sem gæti þýtt að ekki verði næg forgangsorka til í kerfinu,“ segir Guðmundur Ingi Ásmundsson forstjóri Landsnets. Meira
Að mati Landsnets eru líkur á viðvarandi orkuskorti næstu árin þar sem umframraforkuframboð til að bregðast við mismunandi aðstæðum á raforkumarkaði er lítið og því fylgja verðhækkanir á raforku. Meira
Sævar Freyr Þráinsson forstjóri Orkuveitunnar segir bæði erlenda og innlenda aðila hafa sýnt risaútboði félagsins áhuga en stefnt er að því að bora allt að 35 holur til að meta hvar mætti framleiða heitt vatn og raforku. Meira
Toyota bauð blaðamanni í grjótnámu til að upplifa vetnisdrifinn Toyota Hilux. Meira
Orkustofnun hefur gefið út virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun í Þjórsá og er stefnt að því að virkjunin taki til starfa fyrir árslok 2028. Meira
Árangur af jarðhitaleit á Miðnesheiði er þegar kominn fram úr björtustu vonum, en þegar hafa verið boraðar tvær rannsóknarholur til leitar að lághitavatni sem vísbendingar eru um að geti skilað heitu vatni í þeim mæli að unnt verði að halda öllum innviðum á Suðurnesjum frostfríum, komi til þess að hitaveita á svæðinu verði óvirk vegna eldsumbrota. Meira
Orkubú Vestfjarða og Landsvirkun hafa undirritað samkomulag um um sölu á forgangsorku til fjarvarmaveitna á Vestfjörðum næstu fjögur árin. Meira
Viðræður Landsnets og eigenda tveggja jarða í Hörgársveit er varða lagningu jarðstrengs milli Akureyrar og Dalvíkur hafa gengið illa. Þetta segir Friðrika Marteinsdóttir, verkefnastjóri framkvæmda hjá Landsneti. Meira
„Ég vildi ekki vera í þeirri stöðu að vera sá sem ýtir undir það að fólk og fyrirtæki fái ekki raforku,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra í samtali við Morgunblaðið og segir að alvarlegt sé að tefja virkjunarframkvæmdir sem ákveðnar hafi verið fyrir löngu, verið mörg ár í undirbúningi og allir hlutaðeigandi hafi verið meðvitaðir um. Meira
Rafstrengirnir tveir sem Landsnet ætlar að leggja á milli lands og Vestmannaeyja til að tryggja raforkuöryggi í Eyjum verða 18 kílómetrar að lengd. Meira
Rafmagn fór víða af í Venesúela í gær sem stjórnvöld segja vera vegna skemmdarverka á raforkukerfi landsins. Meira
Orkubú Vestfjarða hefur brennt 60-70 þúsund lítrum af olíu vegna rafkyntra hitaveitna á Ísafirði, Suðureyri, Flateyri, Patreksfirði og í Bolungarvík. Meira
Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku, segir orkuinnviði fyrirtækisins ekki í bráðri hættu eins og er. Fyrirtækið fylgist þó vel með því hvernig gosið þróist og hraunflæðið verður. Meira
Mjög umfangsmikið viðhaldsverkefni stendur nú yfir í Búrfellsvirkjun og var öll raforkuframleiðsla í Búrfellsstöð 1 stöðvuð á laugardaginn. Þurfti meðal annars kafara til að kafa að öryggislokum þegar lokað var fyrir vatnsinntak virkjunarinnar. Meira
Hagnaður Landsvirkjunar dróst saman um 38% milli ára á fyrri árshelmingi, en hann nam alls 70,5 milljónum dala, eða sem nemur um 9,7 milljörðum króna, samanborið við 114 milljónir dala á sama tímabili á síðasta ári. Meira
Uppbyggingu vindorkuvera þarf að vinna í samstarfi við sveitarfélögin á áhrifasvæði þeirra en ekki einungis þar sem vindmyllurnar fara ofan í jörðu. Meira
Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra segir það geta haft alvarlegar afleiðingar fyrir þjóðina ef tafið er fyrir orkuöflun með kærum. Meira
Oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps segir mikla áhættu fólgna í því að staðsetja vindorkugarðinn Búrfellslund á svæði þar sem mest raforkuframleiðsla eigi sér stað sem sé jafnframt eitt virkasta eldfjallasvæði landsins. Meira
Orkustofnun afgreiddi í dag virkjunarleyfi fyrir vindorkuverið Búrfellslund við Vaðöldu. Landsvirkjun mun í kjölfarið sækja um framkvæmdaleyfi til sveitarstjórnar Rangárþings ytra. Meira